'99 E39 540, miðstöð bílstjóramegin köld, farþegamegin heit!

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

'99 E39 540, miðstöð bílstjóramegin köld, farþegamegin heit!

Postby geirisk8 » Wed 05. Dec 2012 18:49

Hefur einhver lent í því að miðstöðin í E39 taki upp á að blása heitu og góðu lofti farþegamegin en bílstjóramegin kemur bara kalt (já eða alveg öfugt)? Það sem gerist hjá mér er að vélin hitnar og er við rétt hitastig en bílstjóramegin kemur einungis kalt loft, alveg sama hvað ég reyni og fikta í miðstöðvarstillingunum. Miðstöðin helst alltaf heit og góð farþegamegin og svo kemur fyrir af og til að miðstöðin hitni aðeins bílstjóramegin, en aldrei alveg eins og það á að vera.

Öll hjálp og allar upplýsingar eru vel þegnar. Ég væri til í að laga þetta sjálfur, eins og mest allt annað í bílnum þar sem slík þjónusta er allt of dýr hér á landi fyrir minn smekk =)

ps. Það þarf ekkert að nefna neitt um vatnskerfið því það er í góðu standi og ég er búinn að athuga hvort það séu loftbólur í því.
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Re: '99 E39 540, miðstöð bílstjóramegin köld, farþegamegin h

Postby BMW_Owner » Wed 05. Dec 2012 20:14

það eru 2 litlar rafmagnsspólur sem hafa þann eiginleika að festast eða ákveða einn daginn að hlutverki sínu sé lokið. þetta lítur út eins og 2 silfurlitaðir lóðréttir rafmagnsmótorar uppvið hvalbakinn og í þetta er tengdar litlar svartar slöngur sem liggja frá vélinni annarsvegar og innan í miðstöðina.

ódýra aðferðin við að laga þetta er að stilla allt á hita innan í bílnum hjá þér og hafa bílinn vel heitann, og slá í þetta með litlu röri í von um að það "losni" um þetta,

en dýra aðgerðin og tvímælalaust betri er að kaupa þetta frá einhverjum eða nýtt í umboðinu og skipta um þetta. það ætti að vera tiltölulega auðvelt að komast að þessu, en þetta er líklegast á hvalbaknum bílstjórameginn.

p.s það getur vel verið að það sé eitthvað tölvu vandamál í miðstöðinni hjá þér en þar sem þessar miðstöðvartölvur voru þróaðar af nasa og álíka búnaður er notaður í geimbílum og þannig dóti þá myndi ég biðja til guðs um að þetta rafmagnsmótora/spólu dót sé það sem er að angra miðstöðina þína.

kv.
BMW 528Ia
User avatar
BMW_Owner
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1965
Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58

Re: '99 E39 540, miðstöð bílstjóramegin köld, farþegamegin h

Postby Doror » Thu 06. Dec 2012 12:25

Ég leysti þetta hjá mér á sínum tíma í E36 323 með því að kaupa þykka sokka handa konunni.
BMW 320 E90 2006
Jeep Grand Cherokee 38" 5.9
BMW 323 E36 - Seldur
BMW 320I E36 - Seldur
BMW 330 SMG - Seldur
User avatar
Doror
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 436
Joined: Wed 20. Sep 2006 08:47

Re: '99 E39 540, miðstöð bílstjóramegin köld, farþegamegin h

Postby Bartek » Fri 07. Dec 2012 13:30

Doror wrote:Ég leysti þetta hjá mér á sínum tíma í E36 323 með því að kaupa þykka sokka handa konunni.

2 :thup:
e34 "M5" Nauticgrun
BMW X5 4,4i sport
e34 525T TDS Brokatrot
e32 740i Calypsorot
User avatar
Bartek
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2656
Joined: Sun 01. Mar 2009 22:09
Location: Keflavik


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 28 guests