by HK RACING » Sun 01. Sep 2013 15:42
Jæja eftir að hafa verið notaður í rallýkross í sumar ákváðum við að fara á honum í RallýReykjavík,af 21 bíl sem keppti var þetta eini eindrifsbíllinn,eftir að hafa byrjað rólega á degi 1 til að læra á bílinn en við vorum í 11.sæti eftir fyrsta dag en á degi 2 fórum við að taka aðeins á honum,misstum bolta úr afturdempara á dómadal og töpuðum tíma,náðum að koma öðrum bolta í og festa demparann og halda áfram en eftir 2 leiðar brotnaði sá bolti og við þurftum því að keyra 2 stuttar leiðar með engan dempara hægra megin að aftan og löguðum svo þetta um kvöldið,á laugardegi ræsum við af stað í 5.sæti en með marga öfluga bíla rétt fyrir aftan okkur og var stefnan sett á að halda þeim þar,eftir að hafa tekið besta tíma af öllum keppendum á fyrstu leið um morguninn sem lá um bolabás og var á malbiki vorum við komnir uppí 4.sæti og áttum þá raunhæfan möguleika á að berjast um 3.sæti en sá sem var þar var 1 og hálfri mínútu á undan,var þá ákveðið að standa allt flatt þó leiðarnar væru grófar og hentuðu okkar bíl kannski ekki neitt sérstaklega vel en þá náðum við að stela 10-15 sekúndum á hverri leið á bílinn fyrir framan,þegar 2 leiðar voru eftir var munurinn 23 sekúndur,næstsíðasta leið var um kleifarvatn en þar var malbik að hluta og var vel tekið á því þar sem endaði með að við tókum aftur besta tíma af öllum og náðum 12 sekúndum af þeim sem á undan okkur var og var munurinn þá bara 11 sek fyrir síðustu leið en hún var um 25 kílómetra löng og lá um djúpavatn og var þar mikið af pollum og vatni,þar var ákveðið að taka bara vel á því án þess að fórna öllu og endaði það með því að við tókum 23 sek af þeim sem á undan okkur var og náðum 3 sætinu,við erum alveg hrikalega sáttir við þetta allt þar sem stefna var sett á topp 10 fyrir keppnina......
Hilmar B Þráinsson S 822-8171