Þetta er undarleg bilun og hef ég alternatorin grunaðan en bilunin lýsir sér þannig að þegar búið er að keyra bílinn í svona 2min þá byrja ljós að loga í mælaborðinu(fyrst ABS svo Spólvörn) og stuttu eftir það sloknar á útvarpinu og svo að lokum bílnum, en ef ég gef bílnum yfir ca 2300rpm þá hverfa ljósin, útvarpið kemur aftur inn og hægt er að nota bílinn eðlilega alveg þangað til að drepið er á honum og ræst aftur þá hefst þetta ferli aftur, bílinn virðist ekki tapa rafmagni á að standa. Ég er búinn að skipta um rafgeymir og setti 100AH lítið notaðan rafgeymi í bílinn en það dugði ekki til. Mældi pólana í húddinu og mældist rétt rúmlega 14V í gangi og rétt rúmlega 12V ekki í gangi. Einhverjar uppástungur eða er þetta bara alternatorinn?
mbk. Markús



