by JOGA » Sun 23. Sep 2012 10:15
Ég átti Clio RT 1.4 í tvö ár nýlega. 1999 eða 2000 árgerð.
Keypti fyrir lítið og seldi á svipuðu verði.
Besti litli bíll sem ég hef komið nálægt. Mjög flott fjöðrun og aksturseiginleikar.
Eyðir litlu en er samt sprækur. Helling af búnaði í RT týpunni. Nothæft skott og fínt pláss.
Í samanburði við Yaris er þetta Rolls.
Jú hann bilaði eitthvað. En þetta er almennt talið með betri frönskum bílum hvað það varðar.
Minn var ekinn 149þús. þegar ég keypti og var farinn að nálgast 170þús minnir mig þegar ég seldi.
Það sem fór var ekki alvarlegt. Jarðtenging, ljósatengi x2, öxull og legur að framan, púst.
Mikið til af varahlutum í UK líka og hægt að panta þaðan ódýrt.
Last edited by
JOGA on Mon 24. Sep 2012 00:49, edited 1 time in total.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir