Vesen með olíupönnuna í 520I E39

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Vesen með olíupönnuna í 520I E39

Postby Svenni Litli » Sat 22. Sep 2012 18:03

Jæja þá er ég búinn að eiga bmw í 2 daga og lentur í öðrum vandræðum.

Ég semsagt fór með hann í smurningu í gær því ég var að kaupa bílinn og þetta er eitthvað sem skiptir mig miklu máli að smyrja bílinn. Allt í lagi með það bíllinn fer uppá liftu og gæinn ætlar að losa olíutappann í pönnunni, snýr honum X mikið ( var ekki að fylgjast almennilega með því) og hann segir mér að hann sé forskrúfaður. Allt í lagi með það, man ekki alveg hvernig þetta atvikaðist en það var einhver sem sagði gæjanum að herða aðeins þrátt fyrir að hann sé forskrúfaður svo það var gert. Þá fer ég að bölva þetta dót og maðurinn segir við mig að þetta sé algengt, það róaði mig og ég var fljótir að gleyma þessu.

Síðan sjúa þeir olíuna af honum, setja nýja á og ég fer út að keyra á ný smurða BMW-inum mínum aðeins ofsáttur!

Ekki nema hvað þegar ég fer á honum í vinnuna þá gegnur hann illa eins og kom framm í fyrri þræði í dag s.s. daginn eftir. Svo þegar ég klára vinnuna er þessi heljarinnar olíupollur undir honum. ég mældi olíuna og mér var óhætt að aka heim til KKA þar var bílnum tjakkað upp og komst ég að því að boltinn sem var forskrúfaður, það lekur meðfram honum!

Þannig ég spyr ykkur spjallverjar á ég að hafa samband við FÍB eða hver ber ábyrgðina í þessu máli.

Ég er búinn að eiga bílinn í tvo daga :(

Kv einn sem þurti að keyra impresu heim hehe :) takk fyrir lánið KKA :)
Súbbi vetrar
BMW E36 [PK108]
BMW E39 [OX787] seldur
Svenni Litli
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 69
Joined: Fri 24. Oct 2008 22:30

Re: Vesen með olíupönnuna í 520I E39

Postby Zed III » Sun 23. Sep 2012 15:30

Forskrúfaðir boltar eru ekki sérsvið FÍB. Myndi frekar leita leiða til að laga þetta, getur ekki verið mikið mál að græja þetta með því að snitta stærri bolta í gatið.

Þetta er gamall bíll, gerðu ráð fyrir að þurfa að sinna viðhaldi.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Vesen með olíupönnuna í 520I E39

Postby Svenni Litli » Sun 23. Sep 2012 16:35

Zed III wrote:Forskrúfaðir boltar eru ekki sérsvið FÍB. Myndi frekar leita leiða til að laga þetta, getur ekki verið mikið mál að græja þetta með því að snitta stærri bolta í gatið.

Þetta er gamall bíll, gerðu ráð fyrir að þurfa að sinna viðhaldi.


Ég veit það full vel :)
Enda fór ég með hann í smurningu til að sinna viðhaldi. En málið er að það er svolítið vesen að snitta yfirstærð að bolta í útaf því að boltinn er innfallinn í pönnuna því myndi toppur ofaná stærri bolta eflaust ekki komast fyrir.

Ég er að spá í að láta bara sjóða boltan fastan svo hann leki ekki og láta í framhaldi af því sjúa olíuna af bílnum í olíuskiptum.
Súbbi vetrar
BMW E36 [PK108]
BMW E39 [OX787] seldur
Svenni Litli
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 69
Joined: Fri 24. Oct 2008 22:30

Re: Vesen með olíupönnuna í 520I E39

Postby Zed III » Sun 23. Sep 2012 17:30

það er samt líklegt það sé bara tappinn sem sé vandamálið, ekki gengjurnar á pönnunni. Náðist tappinn úr og var þetta almennileg smurstöð sem var að gera þetta ?
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Vesen með olíupönnuna í 520I E39

Postby íbbi_ » Sun 23. Sep 2012 19:31

bíllinn var smurður í ágúst :shock:
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Vesen með olíupönnuna í 520I E39

Postby Lindemann » Sun 23. Sep 2012 21:04

Þetta er ekkert vandamál að redda.... farðu bara með bílinn á verkstæði sem er hæft til að sinna svona viðgerðum. Eðalbílar koma fyrst upp í hugann, þeir redda þessu eflaust vel fyrir sanngjarnan aur.

FÍB eru ekki að fara að hjálpa þér mikið í þessu held ég..
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: Vesen með olíupönnuna í 520I E39

Postby slapi » Sun 23. Sep 2012 21:37

Zed III wrote:það er samt líklegt það sé bara tappinn sem sé vandamálið, ekki gengjurnar á pönnunni. Náðist tappinn úr og var þetta almennileg smurstöð sem var að gera þetta ?


Reyndar myndi ég halda að pannan væri frekar vandamálið þar sem hún er úr áli og gefur því frekar eftir.
Við fengum 320D E46 um daginn sem hafi farið í smur og það endaði ekki betur en það að það var reynt að þröngva inn vitlausum tappa og það endaði með stærðar sprungur í pönnunni.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 6 guests