520I E39 heldur ekki lausagangi

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

520I E39 heldur ekki lausagangi

Postby Svenni Litli » Sat 22. Sep 2012 09:23

Góðan daginn spjallverjar,

Ég keypti mér minn fyrsta BMW í fyrradag af gerðinni BMW 520I E39 1999 árg.

Fyrri eigandi sagði mér að hann gangi truntulega og stundum drepur á sér þegar hann er kaldur. En þegar hann er heitur þá er allt í góðu nema ABS ljósið logar og spólvörnin ASC minnir mig.

Í morgun þegar ég ætla í vinnuna tek ég eftir að ljósin eru farinn og eftir smá stund var hann farinn að ganga illa og drap svo á sér, ég einfaldlega kveikti á honum aftur og hélt honum í 1500 sn svo hann drepi ekki á sér aftur en mótorinn var með einhver leiðinda hljóð eins og það væri að kæfa hann.

Ég legg af stað í vinnuna og prófa að athuga hvort ABS-ið virkaði víst ABS ljósið var ekki á, það virkaði mjög vel. Alla leiðina í vinnuna titraði hann óvenjulega mikið í inngjöf en hætti um leið og ég sleppti inngjöfinni auk þess sem hann var óvenjulega kraftlaus. Ferðin var frá hafnarfirði uppá höfða og alla leiðina hegðaði bíllinn sér svona, svo þegar ég kem í vinnuna drep ég á bílnum, hef hann þannig í smá stund meðan ég skoða bókina um bílinn en hún er á þýsku svo ég skildi ekki neitt. Þegar ég kveiki aftur á honum þá er allt komið í lag, bíllinn heldur lausagangi og fær kraftinn aftur. En ASC og ABS ljósið logar.

Er einhver sem kannast við svona bilnun?

Með fyrir fram þakkir Sveinn :)
Súbbi vetrar
BMW E36 [PK108]
BMW E39 [OX787] seldur
Svenni Litli
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 69
Joined: Fri 24. Oct 2008 22:30

Re: 520I E39 heldur ekki lausagangi

Postby íbbi_ » Sat 22. Sep 2012 11:53

er þetta ox787?
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: 520I E39 heldur ekki lausagangi

Postby Svenni Litli » Sat 22. Sep 2012 13:07

Já þetta er hann, kannastu við bílinn?
Súbbi vetrar
BMW E36 [PK108]
BMW E39 [OX787] seldur
Svenni Litli
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 69
Joined: Fri 24. Oct 2008 22:30

Re: 520I E39 heldur ekki lausagangi

Postby íbbi_ » Sat 22. Sep 2012 14:23

já þetta er gamli bíllinn minn.

bíllinn gékk eins og klukka þegar ég átti hann, og því kannast ég ekki við vandamálið, en grunar vissan hlut sem ég útlisti nánar í pm.

abs/esp ljósið er þessu m/öllu ótengt

til hamingju með bílin, þetta er hrikalega solid eintak
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: 520I E39 heldur ekki lausagangi

Postby Zed III » Sat 22. Sep 2012 19:44

Myndi skoda hluti eins og vacuum leka, maf sensor og o2 skynjara.

Ljósin eru ótengd ganginum.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 34 guests