Getur einhver sagt mér hvað ég þarf að rífa af E30 fyrir sprautun? Veit svona gróflega en vantar að vita alveg full on detail lista ef einhver lumar á þeim fróðleik
Þú tekur bara allt af.. framsvuntu+stuðara.. sama að aftan, ALLAR rúður og gúmmílista, hurðarhandföng, hurðar, þakliststana, ristarnar á hvalbaknum+rúðuþurrkur.
Ekkert stórmál en tímafrekt aðallega að raða þessu saman aftur án þess að rispa nýja lakkið.
Góður listi hjá Einari. Þú skalt skoða sérstaklega allt í kringum ristarnar undir framrúðunni og skottið að innan, kringum ljósin og undir listanum þar sem skottlæsinginn smellur ofan í. Þessir staðir eiga það til að vera riðgaðir.