Nú virðist ég hafa lent í því að það hefur fokið eitthvað utaní bílinn hjá mér og afturrúðan v/m brotnaði ásamt vinstra afturljósi, bæta tryggingar svona tjón?
Last edited by Axel Jóhann on Tue 11. Sep 2012 12:19, edited 1 time in total.
Ef þú getur rakið hvað fauk í bílinn og hvaðan það kom þá er eigandi þess ábyrgur fyrir tjóninu Ef það er ekki rakið getur bílrúðu tryggingin mögulega tekið rúðuna en ef bíllinn er ekki í kaskó þá er lítið annað sem hægt er að bæta.
Bíllinn er náttúrulega ekki í kaskó en ég tók ekki eftir þessu fyrr en ég var kominn í hfj frá kópavoginum þannig ætli ég prófi ekki bara að hringja í tryggingarnar á morgun og væla smá, ég hef aldrei lent í neinu tjóni
Þetta var fyrir utan vinnuna hjá mér í kópavoginum, það voru tvö frauð bretti sem hafa hugsanlega getað valdið þessu, yfirmaðurinn minn tók þau inn í dag en þau gætu hafa verið að fjúka utaní bílinn hjá mér áður enn það var, þau voru merkt póstinum minnir mig.