jæja allt að gerast hef því miður ekki verið duglegur að taka myndir upp á síðkastið en það er verðið að vinna á fullu í þessu. pöntuð voru öll ljós ný nema aðalljós og búið er laga allt nema eina hurð (aðalega vegna leti) en hér eru nokkrar myndir af því sem gerst hefur síðast liðna viku.
sprautunin tókst vel alveg þangað til að loka umferðin af glæru var sett á, þá fékk ég þá snildar hugmynd um að fara framm og fá mér smá frískt loft með þeim afleiðingum að þegar ég opnaði hurðina kom mikill gustur inn og bíllinn leit út eins og sandpappír á eftir. enn á morgun fer ég og glæran aftur.
Loksins loksins er eithvað að gerast. Eftir tæp 4 ár er þessi eðalvagn kominn á götuna.
Föstudaginn var (31 ágúst) reið ég á vaðið og fann mér skiptingu úr e36 sem passaði engan veginn við m60 en var með rétta ventlakistu, ZF viðgerðasettið sem ég verslaði mér veturinn 2011 var rifið úr hilluni með hraði og ssk gamla tekinn í gegn. Mánudaginn 3.sept var allt farið að virka og hreyfast eftir ca. 6 ár í geymslu. Sumarið 2011 var hjólabúnaður, vél og bremsukerfi tekið í nefið og var því ekkert annað í stöðuni enn að drífa gripin í skoðun. Eftir að skoðunar aðilar fóru yfir ökutækið kom mér mikið á óvart að fyrir utan smá lagfæringar á festingum fyrir stefnuljós vm framan og nr. Ramma væri ekkert aðfinanlegt. Þ.e. Full skoðun.
Eftir að hafa ekið bílnum tæpa 300km síðan á mánudag hefur ýmislegt gengið á vegna skorts á vatnskassa festingum og svo virðist sem kassin hafi frostsprúngið. Því hefur verið reddað tímabundið (vonandi) með ýmsum ráðum.