Daginn
Ég hef til sölu BMW E30, 325 MTech II, sem vantar ást og umhyggju.
Tæknilegar upplýsingar Orginal MTech II bíll
 Mótor - M20B25 (2,5 L) 170hp
 Læst drif - stóra
 Módel - 1988
 Ekinn - 220.xxx
 Beinskiptur
 Felgur - BBS RS 001, 15", þriggja hluta
 Litur - Schwarz-metallic
 Topplúga, lekur ekki
 Strutbar í vélasal
 Geislaspilari og þokkalegir hátalarar aftur í
 Dekkinn eru heilsársdekk í mjög góðu standi 
Það sem þarf að laga:Þessi bíll var fluttur inn einhvern tímann í kringum 2006 en viðhaldið hefur ekki verið það besta. Það eru komnir nokkrir ryðblettir í boddýið, afturgaflinn og skottið lélegt. Það fylgir hins vegar nýtt skott í öðrum lit í ágætis standi. Eins eru hjólabogarnir að aftan ryðgaðir en virðist vera eingöngu yfirborðs. Það þarf að sjóða í annað hornið niðri við fremri hjólaskálina en annars er botninn furðu góður.
Gormarnir að framan eru brotnir og þarf því að skipta þeim út.
Pönnupakkningin er ónýt og smitar hann því olíu - Fylgir
Farinn spindill hægra meginn að framan.
Framstuðarinn er beyglaður en það ætti að vera hægt að rétta hann
Húddið er beyglað rétt fremst - Bakkað á mig eftir að myndin var tekin.
Innréttingin hefur séð betri daga
Mótorpúðar orðnir slitnir
Verð 350þ
Ég er fastur á þessu verði þar sem það er það sama og ég keypti hann á í vetur og er ég búinn að vinna í honum síðan þá. Mér finnst verðið vera nokkuð sanngjarnt fyrir bílinn þrátt fyrir að hann sé orðinn svolítið "tussulegur" því það er svo margt bitastætt í honum sem virkar vel (mótorinn, drifið og MTech II kittið t.d.). Þessi bíll væri tilvalið verkefni í vetur. Ástæðan fyrir sölu er flutningur til  útlanda í haust.
Óskar: 695-0462 eða PMp.s. Bíllinn er á númerum núna en fékk endurskoðun vegna nokkurra atriða sem nefnd voru hér að ofan.
 
					
						_________________
E30 325 MTech II '88
If it works... don´t fix it 
