Sælir vinir,
Því miður þá var ég einn af þeim sem lenda í umferðaróhappi núna um verslunarmannahelgina, en er orðinn nokkuð góður og svona, en nú ætla ég að hugsa aðeins um bílinn.. Hann er minna skemmdur en ég bjóst við í fyrstu, bara vatnskassi, stuðari, nýrnabiti og nýrum og það að framan.. En svo er eitt, loftpúðar, hvað þarf ég að gera við þá og svona? þarf ég að kaupa nýja púða til að setja í stýrið og í mælaborðið og reseta airbag ljós og svona eða hvernig virkar það? Ætla mér bara að taka þvi rólega í uppgerð.. Og er eitthvað sem þið mælið með a kíkja á eftir svona slys?



