Akstursæfing DDA 27. júlí '12.Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!
*Mynd frá Sæma Boom
Brautin opnar kl. 18:00 og við hættum að keyra í síðasta lagi kl. 22:00. Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.
Það sem þarf til að fá að keyra er:
● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
● Gilt ökuskírteini. ATH! Þið þurfið að sýna ökuskirteini á staðnum.
● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
● Löglegur hjálmur.
● Nagladekk stranglega bönnuð.
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.
Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum. Við tökum við greiðslum upp á braut, posi á staðnum.
[insert strækþrú effekt] Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php [end strækþrú effekt]ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 5000 kr.Vefsíðan liggur niðri, svo ef fólk vill skrá sig í félagið, þá verður það að gera það upp á braut. Þar sem posinn á staðnum verður fyrir brautargjaldið sem rennur til AÍH, þá verður að borga DDA skráninguna með BANDBRJÁLUÐU FÉI.
Semsagt:
1. Þú ert ný(r).
2a. Þú ert nýkomin(n) með bílpróf og/eða...
2b. Þú uppgötvar að þú hefur gaman að því að keyra hratt.
3. Þú ferð í hraðbankann.
4. Þú tekur út 5000 kr. í reiðu fé.
5. Þú ekur upp á braut til okkar á föstudagskvöldið.
6. Þú greiðir okkur þessar 5000 kr. og ert þar með gengin(n) í DDA.
7. Þú greiðir starfsmanni AÍH 1000 kr. með pening eða korti.
8. Þú setur hjálm á hausinn.
9. Þú spennir beltið.
10.-99. Þú reykspólar inn í nóttina.
Muna svo:
Það kostar ekkert að koma og fylgjast með.
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendur eru þó hvattir til að koma gangandi niður í pitt.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með sólina og góða skapið.
F.h. DDA.