ýmisleg rafmagnsvandræði í e46 Update

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

ýmisleg rafmagnsvandræði í e46 Update

Postby oskar9 » Fri 29. Jun 2012 15:02

Búið er að redda mælaborðinu, en hátlararnir truflast enþá af angel eyes kerfinu, einng veldur xenon kerfið í kösturunum sömu vandræðum


Sælir, var að versla e46 323CI bíl. búið er að setja aftermarket Xenon í aðalljós og kastara, einnig eru kominn blá Angel eyes.

þegar ég ræsi bílinn með ljósinn slökkt þá blikka Angel eyes nokkrum sinnum eftir að hann er gangsettur og slökna síðan, þegar þau blikka þá heyrist svona bank eða tikk úr hátölurum bílsins í takt við blikkið í ljósunum, gæti það verið tengt saman.

annað vandamál sem gerist óreglulega, stundum með mínútu millibili stundum með klukkutíma millibili, er það að mælaborðið virðist deyja í 2-3 sekúndur, öll ljós slökna og nálarnar detta niður og hraða og snúningsnálin víbra á botninum með viðeigandi látum, eins og þær séu að skralla á einhverju.

þó þetta sé ótengt þá er hægt að láta mælaborðið detta út með að kveikja-slökkva-kveikja á kösturunum að framan, en einnig gerist þetta handhófskennt þó mig gruni að þetta sé tengt þessu aftermarket ljósa dóti á einhvern hátt eða öllu heldur frágangi á því.

gott er að minnast á það þó að mælarnir detta út þó engin ljós séu kveikt framan á bílnum.

afsakið ruglingslegan póst en gott væri ef einhver gæti bent á vandamálið áður en ég ríf allt í spað.

Takk fyrir
User avatar
oskar9
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 94
Joined: Sat 28. Mar 2009 16:28

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 2 guests