Góðan daginn. Mig langaði að athuga hvort menn hafi lent í því að fæðingarvottorð séu ekki tæmandi?
Var að eignast bíl sem er með ýmsum aukabúnaði sem er ekki listaður á fæðingarvottorðinu.
T.d stendur að það sé rafmagn í rúðum frammí, en er allan hringinn, stendur ekki að það sé leðurinnrétting sem er samt sem áður. Það eru gardínur í afturhurðunum, sem ég hélt að kæmu bara í bílum með leðurinnréttingu. Gardínurnar eru á fæðingarvottorðinu, en ekki leður innréttingin.
Það stendur hins vegar M technic sportpaket í fæðingarvottorðinu. Hvað segir það mér?
Það er ýmislegt sem er ekki á vottorðinu. Ég geri mér grein fyrir því að það gæti verið að einhver hafi sett þetta í hann eftirá, en mér finnst svo ólíklegt að sumt sé ekki orginal.
Hérna er listi yfir nokkra hluti sem eru í bílnum en eru ekki listaðir:
Svart leður comfort með armpúðum og svörtum hurðaspjöldum
Rafmagns gardína í afturhillu
M-tech stuðarar, sílsaplöst og spoiler
Bakkskynjarar
Webasto miðstöð með fjarstýringu
Bílasími með handfrjálsum búnaði
fine wood trim
Einhverjir ógeðslega ljótir M hliðarspeglar
Og eitthvað fleira.
