by ZveppZ » Fri 22. Jun 2012 17:33
Er í smá brasi með e36, hann á það til í hægagangi að byggja sig úr svona u.þ.b 1000rpm upp í 1500rpm og falla síðan aftur í 1000rpm og gerir það aftur og aftur en venjulega á hann að vera í svona 1100 eða þar um bil , maður finnur stundum fyrir þessu í akstri þegar maður er að dóla á honum í fyrstagír, líka stundum þegar hann er settur kaldur í gang þá ríkur hann alveg í gang en síðan fer snúningurinn alveg niður í 600rpm og fer síðan bara aftur upp í 1100 eða svo , ég er búinn að hreinsa idle control valve-inn og veit að hann virkar, svo ég spyr veit einhver hvað gæti verið að hrjá bílinn??