Þetta er BMW 520i E60 með M-Tech útlitspakka (fram- og afturstuðari, sílsar, listar, stýri ofl.) Einnig með öllum helsta aukabúnaði.
Hrikarlega sáttur með þennan bíl, algjör lúxuskerra og ennþá "nýbílalykt" inní honum
Þessi er umboðsbíll og hefur alltaf verið 100% þjónustaður.
Hann er ekinn rétt um 70þús km og fyrst skráður 3/2008.
Hef nú þannig séð fá plön með þennan..... væri svosem alveg til í 19" M5 felgur og filma ljósast allan hringinn. Sé til hvað ég geri með það.
Læt fylgja með nokkrar Iphone myndir, svo ætla ég að plata Pésa myndavélasnilling í að taka nokkrar pro myndir á næstu dögum.











Endilega segið hvað ykkur finnst




