E30 325i M50B25 NJ-104

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby Jón Ragnar » Fri 08. Jun 2012 22:01

Djöfull ertu ruglaður maður 8)

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby BjarkiHS » Sat 09. Jun 2012 00:07

Ef þig vantar auka hönd í skúrinn Stebbi, þá geturu verið í bandi við mig :)
Bjarki Steingrímsson.
8253105

Jeremy Clarkson wrote:"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"
BjarkiHS
Getawaybílstjóri
 
Posts: 981
Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Location: Ásbrú

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby Stefan325i » Mon 11. Jun 2012 01:53

Ég þakka það Bjarki.

Helginn er búinn að vera þokkaleg, kemst ekki inn á myndasafnið hjá kraftinum þannig að engar myndir núna bæti þeim bara inn seinna.

Búinn að festa inntercooler og klára allar lagnir frá túrbínu og að inntaki.
Búinn að búa til skiptibúnað frá grunni notaði í hann innri og ytri stýrisenda , flatjárn, 10mm tein, gamlan heddbolta, 525i stöng sem fer frá gírskiptirnum yfir i gírkassan.

Stebbtronic skiptirinn er kominn í og búið að festa gírkassa púða.

Sævar kom og hjálpaði mér í dag og er hann búinn að græja downpipe og byrjaður á pústinu.

Mig vantar á morgum

Viftur á vatnskassan, herta bolta í guibo, guibo, ná í olíufitingsin mín hjá vökvatengi, rör í affallið frá túrbínu, hosuklemmur, kerti, pústupphengju, 10mm teina.

Það sem er eftir í fljótu bragði er
Skipta um bensíndælu og skipta um lagnir þar sem þarf, klára púst (Sævar), festa vatnskassa og tengja vatnið, vökvastýrislagnir og festa forðabúr, dirfskapt, víra vems og tjúna (Gunni) og fullt af alskonar smotteríi sem tekur fullt af tíma :D
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby Raggi M5 » Mon 11. Jun 2012 16:46

og auðvitað allt 10 mín í bíladaga, basic :lol:
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby Raggi M5 » Thu 14. Jun 2012 11:56

rakst á þessa, þannig að þetta virðist ætla ganga hjá gamla 8)

Image
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby odinn88 » Thu 14. Jun 2012 12:56

össsh líst svo vel á þetta hjá þér það var bara gaman að kíkja í skúrinn hjá þér í gær og vonandi að þið náið að redda þessu svo að þú komist nú á bíladaga :D
BMW E30 V8

og eitthvað fleirra
User avatar
odinn88
Getawaybílstjóri
 
Posts: 843
Joined: Thu 10. Jun 2010 17:31

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby Stefan325i » Wed 20. Jun 2012 00:50

Þessir seinustu dagar fyrir bíladaga voru heldur til of mikið af hinu góða en allt slapp þetta rétt fyrir horn.

Á miðvikudegi var ennþá eftir að klára púst, víra og ganga frá tölvu og rafmagni , klára inntercoolerlagnir, vatnslagnir, skipta um bensíndælu, tengja inngjafarbarka sem passaði ekki alveg, festa mótorpúða, tengja olíu að og frá túrbínu ásamt því að smíða affallið frá túrbínunni, tengja viftur, leggja að olíuþrýsti og olíuhitaskynjara, setja framljós í, setja grill í, festa húdd, setja hlíf fyrir loftsíu, búa til hitahlíf fyrir mótorpúða, festa stuðara, setja í ballansstangarenda, hjólastilla framdekkin, tengja vökvastýri, blæða bremsur og kúplingu, yfirfara allt og fara í skoðun.

Ég var að vinna á miðvikudag en var búinn kl 15:00, Gunni kom til landsins seint á þriðjudegi og var mættur í skúrinn klukkan 10 á miðvikudags morgni og byrjaði að víra tölvu og annað á meðan ég var í vinnunni.
Vorum við að til um 3 um nóttina.
Á fimtudag þá næ ég í númerin klukkan 9 og sæki Gunna í leiðinni og við höldum áfram, planið var alltaf að fara á fimmdudegi norður, dagurinn leið og gerðist mikið en verklistinn var það langur að ekki komst hann í skoðun þann daginn. Bíllinn náðist í gang um klukkan 23 á fimmtudeginum. Ekki gátum við verið með mikil læti inn í miðju íbúðarhverfi þannig að við fórum að einbeita okkur að öðrum verkum, klukkan 4 um nóttu vorum við orðnir frekar svangir en við höfðum ekkert borðað síðan um hádegi þannig að það var skroppið í smá hvíldar rúnt og fengið sér aðeins í gogginn.
Sá ég hvað var mikil vinna eftir þegar maður hélt að allt væri búið, ein og ein skrúfa hér og þar en þetta telur allt þegar tíminn er enginn.
Klukkan 6:30 ákváðum við félagarnir að skella okkur í sund til að þrífa af okkur skítinn og þannig séð eyða tíma því að ekki gátum við farið að smella kvikindinu í gang á þeim tíma sólahringsinns.
Ferskir klukkan 8 efir afslöppum í pottunum var haldið heim og haldið áfram að koma bílnum í gang en þrátt fyrir að hafa gengið kvöldið áður þá var hann ekki alveg á því að gera það daginn eftir.
Verkfræðingurinn pikkaði inn einhverjar snildar slaufur í vemsið og NJ lifnaði við, þvílík gleði.
Upp í bíl og bakkað út, bíllin var ekki búinn að ganga fyrir eigin vélarafli síðan ágúst 2006 og við keyrðum af stað,

Nú bullsauð á bílnum, við erum vissir um lofttappa sé að ræða og höldum áfram að reyna að ná þessu góðu en bíllinn heldur áfram að hita sig og við ráðum ekk við neitt. Tökum vatnslásinn úr og purfum hann í potti, og virkar hann, borum á hann loftgat til að hjálpa lofti að losna úr vélarrýminu og inn í vatnskassa.
Bíllinn hegðar sér vel og við af stað í skoðun, ekki bjóst ég við öðru en að fá fagurgrænan miða en 7 ár eru síðan bíllinn fór í skoðun síðast og ryðguðu bremsudiskarnir litu ekkert alltof vel út.´14 miði varð fyrir valinu hjá skoðunarmanninum og kvartaði ég ekki yfir því.
Nú er bíllinn orðinn frekar heitur og greinilega ekki í lagi , við erum frekar þreyttir búnir að vaka meira en sólarhring, klukkan orðin 13:00 og uppgjöf í loftinu.
Reynum áfram og bíllinn flottur og við pökkkum í töskur og höldum á leið.

Ég var búinn að taka eftir vatni inn í bíl og grunaði að miðstöðinn gæti verið sprungin þannig að á leið úr bænum þá stoppuðum við og keyptum samtengi og hosuklemmur ef við þyrftum að blinda hana.
Upp á braut og Akureyri here we come, 4 mínútum síðar við út í kanti með opið húdd og ég í blautum skó að blinda miðstöðina, nánast ógerlegt er að komast að þessu en einhvernveginn með þónokkrum sársauka þá náði ég að troða þessu saman tók það um 40 minútur að setja saman 2 hosur.
Pottþétt komið núna, brosandi kátir á leið norður stoppum við aftur eftir 5 mínútur komnir alla leið að Grindavíkurafleggjara. Vatnshitinn alltof mikill og við farnir að hugsa um að hringa í pabba og fá Corolluna hennar mömmu lánaða, horfum á þetta helvítis drasl og frekar súrir en klukkan að gagna 18:00.
Prufar Gunni þá að blása í lögnina efst frá vatnskassa að forðabúri en ekki gegnur það. Að við skulum ekki vera búnir að prufa þetta, þetta er leiðin svo að kerfið lofttæmi sig. Nær að blása þetta út, setjum vatn á bílinn og fokkit höldum áfram.
Vatnshiti solid 90 gráður rokkandi upp og niður um 2 gráður og ekki einu sinni vifturnar í gangi.

Redbull og sælgæti ásamt spjalli alla leið norður var nauðsynlegt, en fyrsti klukkutími í akstri var langerfiðastur en eftir Mosó flott, sykur, adrenalín og koffín sáu um rest.
Steddy 90kmh alla leið norður með Andra félaga í farabroddi á Evo komnir á Eyrina klukkan 23:00 og var móttökunefnd á Ak-inn planinu, bíllinn þveginn og þurrkaður og svo rúntað til um 3 um nóttinna .
Vorum vakandi í 41 tíma að græja hálf ómögulegt verkefni sem náðist þökk sé góðum vinum og konunni minni sem er nánast ekki búin að sjá mig í nokkrar vikur.

Bíllinn virkar ógurlega, er að blása 1bar eins og er, gekk fínt alla helgina, hitaði sig þó á sunnudag, festi vatnslásinn opinn og hreinsaði betur loft lögnina frá vatnskassanum og hitaði hann sig ekki eftir það.

1100 km ferð á gamla góða bílnum mínu og var ótrúlega gott að vera kominn undir stýri aftur.

Takk fyrir mig.

Image
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby bimmer » Wed 20. Jun 2012 00:54

Glæsilegt :thup:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby F2 » Wed 20. Jun 2012 01:23

Var mega gaman að sjá þig á honum:)

Man vel eftir því þegar þú tókst mig rúnt á honum á grandanum 2006
Volvos always get bitches... its just fact... they cant resist the safety and the idea of not having to buy a different car when they have kids... bitches love that
User avatar
F2
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1697
Joined: Thu 22. Jul 2004 14:27
Location: over there

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby jens » Wed 20. Jun 2012 08:32

Gaman að sjá þennan á ný :thup:
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby Geirinn » Wed 20. Jun 2012 08:38

:shock: Til hamingju!
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby Einarsss » Wed 20. Jun 2012 09:17

skemmtilegar svona sögur og alltaf virðast þær koma frá þér rétt eftir bíladaga :lol: :thup:
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby Raggi M5 » Wed 20. Jun 2012 09:29

snilldin ein! Verð að fá rúnt hjá þér sem fyrst 8)
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby apollo » Wed 20. Jun 2012 09:46

Til hamingju ! :D
Ívar Helgi Grímsson

E34 ///M5 90
E21 315
Zx-6r 06
apollo
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 454
Joined: Sun 26. Apr 2009 15:26

Re: E30 325i NJ-104 Bls 27

Postby saemi » Wed 20. Jun 2012 09:51

Frábært að hann sé kominn á götuna aftur. Þetta hefur verið törn :P
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 54 guests