Það eru tvær mýs sem að finnst rosalega skemmtilegt að reita og tæta ullina fyrir aftan harðviðsklæðninguna mína á svölunum hjá mér,,, á 3 hæð!
Þær ná að skríða undir klæðninguna neðst niðri á byggingunni og klifra svo upp eftir ullinni.
Núna er ég með músahótel úti á svölum, svona sem er með einhverri lykt innst inni sem þær eiga að laðast að og skríða inn.. Gengur ekkert alltof vel.
Er einhver hér með skothelt ráð til að veiða svona mýs í gildrur? Ég íhugaði að fá mér límborða á planka úti og setja svo ost á hann. Sjá hvort þær festist ekki í borðanum






