Ég keypti mér þennan sem winterbeater eftir að ég seldi E46. Bíllin var í slöppu ástandi, brotnir stuðarar, vantaði hurðahandfang á bílstjórahurðina, var reykt í honum, ógeðslegar felgur á ónýtum dekkjum, vatnsleki, bilað abs, bilaður bremsusensor og dælduð topplúga svo ég nefni bara nokkra kostina við bílinn.
Það sem var gert fyrir þessa myndatöku var nýtt hurðahandfang, sprautun á stuðurum og svört nýru.




Og þessi mynd var tekinn eftir að það var splæsti í OEM m5 felgur.

Dam, hvað það munar um felgur.
Plönin eru:
Nýar númeraplötur sem ég er búinn að kaupa
Kannski m-tech stýri sem ég á til
Kannski M5 bremsur sem ég á til
Glertopplúga sem ég fæ hjá Ellapjakk
Kannski M5 fjöðrun sem ég á
Kannski m-tech framstuðari sem ég á en þarf að gera við
Ný fram og afturljós, eitthvað smekklegt aftermarket sem kostar ekki hálft nýra.
Lip spoiler sem er búið að panta
og örugglega einhver hellingur í viðbót.