bErio wrote:Tetta er alltaf leidinlegt tegar svonna hlutir gerast en hvernig gastu farid og verslad nyja vel i bilinn en ekki borgad eigandaskiptin og tad?
Nákvæmlega sama og ég var að hugsa.
Eigendaskipti er eitthvað sem ég vil alltaf klára helst um leið og nýr eigandi ekur í burtu á bílnum. Því ef hann lendir í órétti, hraðasekt eða álíka vitleysu, þá getur fyrri eigandi lent ansi illa í því. En í ljósi þess að í þessu tilfelli skilar kaupandi inn eigendaskiptum, þá hefði ég hefði haldið að það að ganga frá eigendaskiptum væri ofar á forgangslistanum heldur en ný vél, sérstaklega þar sem bíllinn er hvort eð er ekkert á númerum.
En það er kannski bara ég..
Annars er það bara gullin regla hjá mér, ef ég sel bíl, þá skila ég ALLTAF inn eigendaskiptum. Ef það eru einhver gjöld eða annað sem er samið um að kaupandi greiði, þá borgar hann bara sem nemur því aukalega við kaupverð. Það sparar gífurlega mikið vesen eins og þetta.







