E34 525ix steisjon! - Gervifótur og skoðun

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

Postby srr » Thu 31. May 2012 01:48

Kemst barnavagn í svona tengdamömmubox ?
Þá væntanlega með að taka rúmið af stellinu ?
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

Postby IvanAnders » Thu 31. May 2012 09:41

srr wrote:Kemst barnavagn í svona tengdamömmubox ?
Þá væntanlega með að taka rúmið af stellinu ?


Þetta var kannski villandi orðað, en nei, barnavagnin mun vera í skottinu, en jafnvel á station leggur hann megnið af skottinu undir sig.
Sé fyrir mér að vera með vagninn þar, ásamt mat, drykk og því sem kemst í viðbót, föt og annar léttari farangur verður í boxinu :)
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

Postby IvanAnders » Mon 04. Jun 2012 00:08

Það er eitthvað að þessum bíl :?
Datt ekki í hug að trúa Aroni Andrew í eina mínútu með eyðsluna sem hann gaf upp (ekki illa meint)

Fyllti bílinn áðan eftir 498,5km akstur, og sama dæla og síðast sló út í 70.7ltr =14,2ltr/100km :shock:

Ég hreinlega skil ekki hvernig þetta má vera :?
Allt innanbæjarakstur, og var með toppbogana á c.a. 200km af þessu, og boxið í 30-40km.

Ég er reyndar mjög latur að gefa honum inn, en þetta er samt ofar öllum væntingum í sambandi við eyðslu!

Sáttur! :)
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

Postby Aron Andrew » Mon 04. Jun 2012 07:18

Ég myndi aldrei ljúga að þér!
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

Postby IvanAnders » Mon 04. Jun 2012 10:14

Enda var ég ekki að saka þig um það Aron! :)
Hélt bara að þú værir að ruglast smá :lol:
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

Postby Axel Jóhann » Mon 04. Jun 2012 10:58

Minn er stabíll í 11.5 innanbæjar og til keflavíkur nokkrum sinnum. 8) Þetta er awesome.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: E34 525ix - HækkunarFAIL bls 2 -

Postby IvanAnders » Sat 09. Jun 2012 17:10

Fór með þennan niðrí vinnu í dag og ætlaði að gera heiðarlega tilraun til að hækka þennan að aftan.

Vandamálið var í nokkrum þáttum:

#1. Bíllinn var full lágur að aftan.
#2. Bíllinn var full mjúkur að aftan (niður af hraðahindrunum og slíkt)
#3. Bíllinn var með hleðslujafnarakerfi að aftan sem hefur verið fjarlægt.
#4. Bíllinn var með gorma og dempara undan E34 540i sedan, ekki touring.

:hmm:

Eftir nokkra umhugsun fór ég uppí AB varahluti og keypti Heavy Duty gorma undir touring:
Image

Mældi hæðina á bílnum áður en ég byrjaði:
Image
C.a. 62cm

Tók annan demparann úr, eitthvað bogið við þetta?
Image

Nýji últra mega tekknó gormurinn jafn langur þeim gamla, á meðan sá gamli er undir pressu frá demparanum :shock:
Skoðum þetta betur:
Image
Eitthvað mun hann hækka lítið með þessu :x
Prófaði að henda þessu samt undir og sjá....
Image

C.a. 63cm og bíllinn á pottþétt eftir að setjast eitthvað, þaaannig aaaaað......
Tókst ekki alveg að hækka bílinn :lol:

Gömlu gormarnir eru 12.6mm í efnisþykkt en nýju 13.1mm
Þeir eru stífari og held ég að bíllinn sé mun stífari (á eftir að prófa almennilega)
En ég þarf annað hvort að smíða mér klossa eða kaupa klossa í hann að aftan til að hafa þetta eins og ég vill :)
Núna ætti ég allavega að geta hlaðið hann af farangri og farið í fríið í lok mánaðar án þess að hann leggist á kviðinn! 8)
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: E34 525ix - HækkunarFAIL bls 2 -

Postby tinni77 » Sat 09. Jun 2012 17:28

Bíllinn er bara að reyna að segja þér að hann vill fara í hina áttina.
BMW E30 325i Coupe
Image
User avatar
tinni77
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2822
Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Location: 112 RVK, E30 city

Re: E34 525ix - HækkunarFAIL bls 2 -

Postby ömmudriver » Sat 09. Jun 2012 18:03

Skelltu bara upphækkunarklossum í hann að aftan og svo getur þú tekið þá úr þegar þú ert búinn í fríinu já eða bara haft þá í bílnum, svo væri ekki vitlaust að óska eftir svona klossum hérna á kraftinum þar sem að það hefur eflaust einhver rifið svona úr bíl hjá sér til þess að lækka hann :) :lol:
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: E34 525ix - HækkunarFAIL bls 2 -

Postby sh4rk » Sat 09. Jun 2012 18:19

Það verður nú að vera eitthvað notkunargildi fyrir þessa bíla, ekki bara slamma þetta í drasl svo þú komist ekki útaf malbikinu
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP
User avatar
sh4rk
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2837
Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Location: Reykjavík

Re: E34 525ix - HækkunarFAIL bls 2 -

Postby IvanAnders » Sat 09. Jun 2012 20:49

ömmudriver wrote:Skelltu bara upphækkunarklossum í hann að aftan og svo getur þú tekið þá úr þegar þú ert búinn í fríinu já eða bara haft þá í bílnum, svo væri ekki vitlaust að óska eftir svona klossum hérna á kraftinum þar sem að það hefur eflaust einhver rifið svona úr bíl hjá sér til þess að lækka hann :) :lol:


Hefði gert það ef það hefðu verið til klossar, hefði smíðað þá ef konan og mánaðargamla krílið hefðu ekki verið heima, bíl og barnavagnslaus :santa:


sh4rk wrote:Það verður nú að vera eitthvað notkunargildi fyrir þessa bíla, ekki bara slamma þetta í drasl svo þú komist ekki útaf malbikinu


Já, Fattaði það að þetta er eina vitið!!!
Þetta er sennilega eini budget BMWinn sem maður getur trillað fjölskyldunni hvert á land sem er allan ársins hring!

Skemmtilegra en að eiga BMW í skúrnum og aka um á Toyotu 9 mánuði á ári :)

Ég er að elska þennan bíl meira og meira!!!
Konan er ekkert í skýjunum með að fara af E39 molanum yfir á þetta..... "Ég sé og finn að hann er gamall" :lol:
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: E34 525ix - HækkunarFAIL bls 2 -

Postby srr » Sat 09. Jun 2012 23:45

IvanAnders wrote:Konan er ekkert í skýjunum með að fara af E39 molanum yfir á þetta..... "Ég sé og finn að hann er gamall" :lol:

Mundu þetta þegar frúin verður orðin gömul :lol:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: E34 525ix - HækkunarFAIL bls 2 -

Postby IvanAnders » Fri 06. Jul 2012 23:55

Jæææja.....

Var að koma heim eftir viku á norðurlandi...

fyrsta mission:
Pakka fyrir 4 í viku, 2 fullorðnir, ein 4 ára og einn 2mánaða.
:|
Stór hluti farangursins, en alls ekki allt!:
Image
Eins gott að skella þessu á fóninn og byrja..

Vagninn kominn í sundur :lol:
Image

Image
Hérna eiga ennþá eftir að koma 4 sængur og koddar ásamt nokkrum pokum af mat! :shock:
Image
Boxið, eða "Davíð Már" eins og ég kalla það:
Image

Allt pakkað og klárt, Bara smá atriði eftir, láta ballansera dekkin, en hann víbraði aðeins í stýri þegar ég fékk hann.
Kom í ljós í ballanseringunni að Ein felga er kengbogin :x
Og 2 dekk eitthvað furðuleg (eins og smá kast á dekkjunum, þó ekki augljóslega vírslitin)
Lét bara ballansera og vonaði það besta, en viti menn, bíllinn snarvernsaði :hmm:
Var alveg að falla á tíma, þurfti að fara í nokkrar verslanir og stússast fyrir ferðina, og búið að loka dekkjaverkstæðum þegar ég losnaði aftur :x
Fór niðrí vinnu og víxlaði fram og afturdekkjum, og viti menn, hann versnaði aftur!!! :aww:
Núna orðinn alveg ókeyrandi!!!
klukkan orðin 22:00 og áætlaður farartími 08:00 :?
Hringdi svo loksins í meistara Hemma (BL) en hann hefur átt 2 svona ix-a (og á 1 ennþá) og annar í fjölskyldunni hjá honum, og því ekkert nýtt fyrir honum í þessum málum.
Hann þekkti vandamálið strax!
Vegna þess hve hátt offsettið er, þá þýðir ekkert að vera feiminn við að negla lóð utan á felgurnar og ballansera alveg niður á 0!
Gengur ekki að líma að innan, eins utarlega og hægt er, þarf að slá lóð utan á (ef þarf)
Þannig að ég skutlaði fjölskyldunni á select í morgunmat, og lét ballansera uppá nýtt á meðan, svo var lagt af stað, með lágmarks stýrisvíbring :)

Bíllinn var bara draumur á veginum og kom ekkert á óvart nema:

1: Bíllinn vigtaði 2170kg hjá göngunum :shock: (sem er bara mikið miðað við að aftursætisfarþegarnir losa um 25kg samanlagt)

2: Eftir að hafa snattað með bílinn fullan af farangri og með boxið á toppnum 65km innanbæjar, og keyrt svo 400km útá þjóðvegi, þá fyllti ég aftur uppí stút á Siglufirði, og tók hann bara 47.75ltr :shock: Þetta gerir rétt rúmlega 10ltr/100km
á 19 ára gömlum, 4x4, 2.17tonn, með 80x40cm box á toppnum

2.5: Eyðslan er ennþá merkilegri í ljósi þess að bíllinn er að ganga of kaldur! Þarf að finna útúr því!

Næst á dagskrá er að redda felgum og dekkjum :) (og gá hvort að framdrifið sé í lagi, trúi því varla miðað við eyðsluna :lol: )
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: E34 525ix - Ferðalag og dekkjavesen -

Postby Axel Jóhann » Sun 08. Jul 2012 18:32

IX e34 eru þannig að 90% tímans er bíllinn bara afturdrifinn og frammdrifið kemur ekki inn nema þegar skriðvarnarljósið kemur á. :D
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: E34 525ix

Postby IvanAnders » Wed 10. Oct 2012 23:36

Þá fara 225/55R16 Michelin vetrardekk undir þennan á morgun, þannig að það er ekki séns að það snjói í vetur!!

Þegar ég skipti um stýrismaskínu í honum í sumar, þá fann ég að það var komið slag í innri stýrisenda.
Þar sem ix-arnir eru einu E34 bílarnir með tannstangarstýri, þá hringdi ég uppí umboð og bað um stýrisenda...
"Innri og ytri koma saman í setti, 50.000kr fyrir hvort hjól" s.s. 100.000kall stýrisendarnir :lol:

Er búinn að panta alla 4 fyrir mig að utan, á aðeins billegra verði, smá bið í þá þó :)

Búinn að keyra hann um 5k síðan ég fékk hann, og er hann kominn í 240.000km.
Mjög ánægður með hann, en það er ýmislegt sem liggur fyrir í honum greyjinu, enda gamall og mikið keyrður,

Skipta um alla stýrisenda og hjólastilla:
Taka hann í smurþjónustu:
Skipta um öxulhosu (sjitt, var búinn að steingleyma henni :oops: )
Rúðuþurrkuspindlar leiðinlegir:
Skipta um afturhlera:
Skipta um keðju:

Er ekki að fara að hlaupa í þetta allt á nóinu, forgangsraða eftir öryggisatriðum bara, nýlega búin að stækka fjölskyldan og jól framundan, ásamt því að það er annar bíll á heimilinu sem þarf að klappa líka, Geri þetta á þeim hraða sem veskið leyfir bara :)
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 38 guests