Jæja, prófum að auglýsa þetta;
Er með e34 520i af árgerðinni 1991. Eins og staðan er í dag er hann ekinn 287.xxx km. Hljómar mikið en hann fer í gang
og kemur sér vel milli staða ! Bíllinn var fluttur inn árið 2009.
Bíllinn er með angel eyes að framan en það þarf að tengja vírana í. Með bílnum fylgja dekkjalaus 17" M Contour felgur (replicur eflaust) og svo vetrarfelgur (baskets) með fínustu vetrardekk. Einnig er Mtech stýri á honum og fylgir gamla stýrið með. Ef einhver vill líka fylgir e32 750i endakútur (notaður) með
Endakúturinn eyðilagðist svo það var settur nýr í af BJB fyrir rúman mánuð eða tvo og fylgir reikningurinn með. Einnig eru frekar nýir
klossar að framan.
Nokkrir hlutir hrjá bílinn eins og er:
*Leiðindaryð!! og lakkið farið að þurfa smá ást
*Gírhnúður laus
*Bílstjórasætið er rifið á tvem stöðum
*Farþegahurðin hægra megin að framan læsist ekki.
*Stýrisdælan lekur víst smá
*Versta viðgerð á afturbretti sem fundist hefur
*Rúðuþurrkur eiginlega ónýtar, veit einhver hvar er hægt að fá rúðuþurrkur í e34 ?
Þessi bíll þarf smá make-over en ég hef því miður bara ekki tímann fyrir það eins og er, rosalega þæginlegur annars í akstri
og mjög efnilegur
Á engar myndir af honum eins og er en fann einhverjar hérna á netinu og vonandi er í lagi að nota þær, ef eigendur þeirra eru ósáttir
endilega bara senda mér PM.
Ég veit ekkert hvað ég á að verðsetja þetta á svo segjum bara
350.000 kr. Ef þú ætlar að væla út af þessu endilega sparaðu þér tíman
og slepptu því bara þar sem að ég er engan veginn fastur á þessu.
Skoða líka skipti á allskonar
bílum.
Áhugasamir geta sent mér PM, er hér daglega.
Myndir:


Gamla stýrið:

Viðgerðin frábæra:
