Akstursæfing DDA 18. maí 2012

Hér skal ræða um allt efni tengt mótorsporti. Ef þú þarft að auglýsa leikdag, æfingu, keppni eða eitthvað slíkt gerðu það þá hér.

Akstursæfing DDA 18. maí 2012

Postby rufuz » Tue 15. May 2012 19:44

Akstursæfing DDA 18. maí 2012.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!

Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 18:00 og við hættum að keyra um kl. 22:00.

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
● Gilt ökuskírteini.
● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
● Löglegur hjálmur.
● Nagladekk stranglega bönnuð.

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Það kostar 1000kr fyrir meðlimi AÍH og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Fríferðirnar sem við höfum haft undanfarin ár fyrir nýja meðlimi gilda ekki lengur.
Ökuþórar verða að framvísa ökuskirteini.


Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 5000 kr.

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með sólina og góða skapið.

F.h. DDA.
Anton

1992 BMW E36 318IS Coupe og...
Image
User avatar
rufuz
Kassabílstjóri
 
Posts: 204
Joined: Sun 16. Jan 2005 02:25
Location: Einhversstaðar á milli himnaríkis og helvítis

Return to Mótorsport

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests