Eftir að hafa farið á Gatebil 2007 held ég að þá mæli ég alfarið með þessu sem skemmtun, það er algerlega snar bilað að sjá þessi tæki í action. Og við vorum bara á sænska Gatebil sem var lítið miðað við Norsku eventin.
Það eru allir mega vinalegir nema þrír MMC EVO III eigendur sem voru algjörir a-holes. Nokkrar sænskar kvensur á staðnum,
ég rabbaði bara við þær á "skandinavísku" sem ég fann upp á staðnum og virkaði svo líka vel í chat.
Eitt crewið hafði keypt 700k ISK rútu til að rúnta frá noregi þetta var svona "BAND TOUR BUS" með fortjaldi sem hafði freaken bílskúr fyrir leiktækið. Þeir voru með E30 með S38 sem leiktæki sem kostaði þá 700k ISK líka, það var fábrotnasti bíllinn á staðnum þá, þeir voru mega hressir og buðu okkur uppá hressingu (bjór) og kvöldið varð samstundis frábært.
Ógeðslegir hamborgarar þarna í .SE enn annars fínt að kíkja þarna.
