Skráning er hafin í fyrstu driftkeppni sumarsins þann 12 maí. Skráning fer fram HÉR.
Keppnisgjald er 4000kr.
Skráningu lýkur á föstudaginn 11 maí kl 15:00.
Til að keppa þarf að vera félagi í einhverju af aðildarfélögum ÍSÍ (t.d. BA, DDA, RCA, KK). Skráning í DDA fer fram HÉR.
Við vekjum athygli á því að kaupa þarf keppnisskírteini frá ÍSÍ. Það má gera HÉR.
Þar sem keppendur verða örugglega ekki komnir með skirteinið í hendurnar fyrir keppni, þá verða keppendur að mæta með afrit af greiðslunni.
Ef einhver ætlar að skrá sig í keppni sérútbúna (twin drift), þá þarf sá að láta okkur vita. Við þurfum að fá minnst fjóra keppendur í þann flokk til að hægt sé að keyra hann.


