bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 04. May 2025 20:04

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 20 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject: Re: e30 BMW 325 m50b25
PostPosted: Fri 04. May 2012 16:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Posts: 3733
Location: 108
arnibjorn wrote:
Á meðan þetta spjallborð eða "Til sölu" dálkurinn er opinn


Myndi persónulega vilja hafa þetta lokað, sé ekki nokkurn tilgang með því að hafa þetta svæði opið til kommenta.
Rétt eins og flóamarkaðinn, eins og þú komst inná.

Finnst sjálfum fáránlegt (og hef rifist við menn hér áður um :lol: ) Að menn geti ekki tekið upp símann bara ef þú hefur áhuga á fjárfestingu, en það eru breyttir tímar bara, menn verða að geta haft þetta stafrænt, annars verslar enginn neitt. Þá geta menn bara sent spurningar á pm email eða í pósti barasta.

Þetta hefur ekkert með það að gera að ég eða aðrir séum svo miklir hözzlerar, ég hef verið þekktur fyrir ýmislegt, en að græða á bílakaupum er ekki eitt þeirra :lol:

Ég er ekki endilega að tala um nákvæmlega eins dæmi og þetta, um daginn t.d. var Sævar berio að selja E39.
Ég er nokkuð virkur hérna og hafi allavega ekki tekið eftir því að þessi tiltekni bíll hefði verið auglýstur hér. Getur þó verið.

Mér fannst verðlagningin bara mjög sanngjörn, en ásett verð var í kringum 700k ef ég man rétt.
s.s. að mínu mati ekkert óeðlilegt í gangi.
Nema hvað að í kommentakerfinu birtist einn sem hafði greinilega upplýsingar um það verð sem Sævar hafði greitt fyrir bílinn, og bara gat ekki setið á sér og þurfti að láta alla vita að Sævar væri að reyna að græða peninga af fólki.

Hver er tilgangurinn?????

Menn fokka upp hverjum söluþræðinum á fætur öðrum, og ég næ bara ekki utan um það, af hverju þetta er ekki stoppað :?

Biðst afsökunar á að hijacka þráðinn, en mér fannst vera búið að eyðileggja hann hvort eð er...

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: e30 BMW 325 m50b25
PostPosted: Fri 04. May 2012 18:04 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sat 24. Sep 2011 13:05
Posts: 44
...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: e30 BMW 325 m50b25
PostPosted: Fri 04. May 2012 23:23 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Thu 09. Feb 2012 22:19
Posts: 9
Það er einhvað sem mer finnst flott við þennan bíl gangi þér vel með sölunna :D


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: e30 BMW 325 m50b25
PostPosted: Sun 06. May 2012 06:27 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 03. May 2003 18:34
Posts: 1610
arnibjorn wrote:
IvanAnders wrote:
Joolli wrote:
Ég myndi segja að það er fullkomlega eðlilegt að spyrja hvað hefur verið gert við bílinn, sérstaklega þegar hann hefur verið í svona stutt í eigu núverandi eiganda. Bara rugl að pirra sig á svona spurningum.


Ósammála!
Það er símanúmer í auglýsingunni, og menn þurfa ekki að hugsa upphátt á lyklaborðið sitt!!
Hvað bíllinn var auglýstur á eða seldist á síðast hefur nákvæmlega EKKERT með það að gera hvað bíllinn kostar í dag!!!
Mér er fyllilega frjálst að kaupa bíl á 30.000kr, rífa úr honum mótorinn og auglýsa hann á 50.000kr.

Sumir eru klaufar að selja bíla, og aðrir þurfa að losa peninga hratt, aðrir geta látið dótið hanga á sölu og beðið eftir besta boðinu.

Alveg útí hött að sjálfskipaðar verðlagslöggur hangi heima hjá sér sveittir við tölvuna að segja ókunnugum mönnum hvað þeir eigi að selja bílana sína á.

"Seldist á minna síðast!!!"
"Hvernig réttlætir þú þetta verð??!!"
"Frændi vinkonu ömmu seldi svipaðan bíl á xxx!!!!"

Eru þessir menn sveittir á laugardagsmorgnum við símann, með fréttablaðið í hönd að hringja í hina og þessa menn með sömu setningar??? Og það án þess að hafa nokkurn áhuga á bílnum???

Rant off/

Það er stór munur á því að auglýsa bílinn sinn í fréttablaðinu eða auglýsta hann á opnu spjallborði fyrir BMW áhugamenn Ívar!!

Af hverju má ekki kommenta á verðið eða spurja útí það? Ef að menn ætla að vera svona svakalega miklir hösslerar og kaupa bíla ódýrt og reyna selja þá svo síðar á miklu hærra verði án þess að geta svarað til um það af hverju verðið er svona mikið hærra þá eiga þeir bara að auglýsa annarsstaðar en inná BMWkrafti þar sem lang flestir þekkjast eða eru kunningjar og hafa sínar skoðanir á hlutunum.

Á meðan þetta spjallborð eða "Til sölu" dálkurinn er opinn þá er mönnum frjálst að spurja útí verðið og kommenta svo lengi sem það er ekki eitthvað "off topic". Ef þú vilt auglýsa bílinn þinn og reyna að græða á honum á kostnað annarra þá skaltu bara auglýsa hann í flóamarkaðnum þar sem ekki er hægt að komenta eða einfaldlega setja hann í fréttablaðið eða bílasolur.is.

Auðvitað er ekkert hægt að segja til um hvað sé "rétt" verð fyrir einhvern bíl því að rétt verð er bara það verð sem bíllinn fer á. Mér finnst hinsvegar persónulega fáránlegt að verðið sem aðili biður um sé algjörlega heilagt og maður megi ekki einu sinni spurja útí verðið og hvað þá ef að jafnvel sami bíll var nýlega til sölu á milljón en kemur svo aftur á sölu (á sömu síðu meira að segja) á 1.5m... þá finnst mér fullkomnlega eðlilegt að einhver spyrji útí verðið. Kannski er nýr eigandi búinn að eyða 500þúsund í bílinn á þessum tíma og þá er bara fínt að það komi fram. Nú ef ekki þá kemur það bara líka fram og mögulegur kaupandi getur þá metið hvort hann sé tilbúinn til að kaupa bílinn á 1.5m sem var til sölu á 1m fyrir stuttu.


Þetta er einmitt mergur málsins. Það kemur hugsanlegum kaupanda ekkert við hvað núverandi eigandi greiddi fyrir bílinn. Þetta er alveg sami bíllinn hvort sem hann seldist á 100 þúsund fyrir viku vegna þess að þáverandi eigandi var í fjárhagsvanda.
Eins og með þennan tiltekna bíl. Hann var búinn að vera á sölu í svolítinn tíma og fékkst svo á góða góða verðinu, undir því sem almennt gengur og gerist með þessa bíla með þessum mótor. Núverandi eigandi greip tækifærið.... Og þarf hann að réttlæta það fyrir öðrum að hann hafi verið maður í það að stökkva á gott tilboð og hugsi sér jafnvel nú að hagnast á skattfrjálsum lausafjárkaupum?
Þvílíka djókið.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: e30 BMW 325 m50b25
PostPosted: Sun 06. May 2012 07:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Þetta er ekkert flókið, seljandanum finnst bíllinn meira virði en það sem hann keypti bílinn á fyrir stuttu síðan og þá er honum frjálst val að setja þessa upphæð á hann.

Það er síðan undir kaupanda komið að ákveða hvort honum finnst bíllinn vera þess virði eða ekki. Ef engum öðrum finnst hann vera svona mikils virði, þá einfaldlega selst bíllinn ekki. En ef að einhver er til í að borga þetta mikið fyrir bílinn, sama hvort það er bara einn einstaklingur eða hvort það eru 100 manns, þá er hann þess virði.

Varðandi akkurat þennan bíl þá var augljóst að fyrrverandi eigandi vildi losna við hann hratt. Hann var ekki búinn að vera með hann auglýstan til sölu í mánuð þegar hann var búinn að lækka verðið um marga tugi þúsunda, augljóslega seldi hann bílinn lægra en hann hefði getað farið.

Ég er persónulega búinn að mynda mér skoðun um hversu mikils virði þessi bíll er, en ætla ekkert að segja þá skoðun hér, þá færu bara ennþá fleyri að væla :mrgreen:

Og síðan finnst mér ekkert að því að spyrja um verðið. Algjör óþarfi að fara í svona svaka vörn því það er spurt um verðið. Bara útskýra það á rólegu nótunum hvers vegna verðið er þetta mikið og halda áfram með lífið.

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 20 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 116 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group