Nú meiga kraftararnir leggja höfuðið í bleyti, Því hér kemur eitt undarlegt vandamál.
Um daginn kom konan frá Dalvík á bílnum og kvartaði undan að eitthvað væri laust að rúlla um skottið.
Ég sá ekkert þar..
Svo fór ég sjálfur utanbæjar nokkrum dögum seinna og fannst ég keyra allavega þrisvar yfir eitthvað sem ég sá ekki á götunni.
Sá ekkert í baksýnisspeglum.
Svo fór ég að heyra þetta "Klunk" oftar þegar ég er að ferðast á bílnum og þetta er alveg eins og einhver sé í skottinu að banka með einhverju hörðu í boddýið á bílnum.
Svo til að toppa þetta alveg þá var ég að stíga út úr bílnum um daginn og mér bregður við hátt "klunk" sem virðist koma undan bílnum aftarlega. Þetta er semsagt ekkert lágt hljóð utan við bílinn.
En það sem er svo merkilegt við þetta að ég get ómöglega endurskapað þetta hljóð sjálfur, það kemur alveg random og án þess að nokkur munur fynnist á bílnum ég er búinn að prófa að hlusta eftir því upp brekkur, niður brekkur, upp og niður kanta, á gjöf, á mikilli gjöf, ekki á gjöf, við að sleppa gjöfinni snögglega, búinn að prófa alla gíra, búinn að prófa að bremsa á alla mögulega vegu.
Ég er algerlega lost, Sérstaklega afþví að þetta virðist engin áhrif hafa á neitt nema að pirra bílsjórann.
Ég var buinn að spá hvort pústið gæti verið að slást til en afhverju ætti það að gera það á 100km hraða á flötum malbikuðum vegi en ekki þegar ég gef í, bremsa, keyri upp kanta og þessháttar?
Einhverjar hugmyndir?
Mig grunar helst fjöðrnar búnaðinn því einhverja spennu þarf til að búa til þetta hátt "klonk".
En þá fynnst mér líka að ég ætti að gera látið hann klonka með djöflast í honum að aftan og hoppa ofan á dráttarkúlunni en það virðist engu skila.
