Ég lenti í því að það fór olíudælan hjá mér í m20b27 og það leiddi af sér að fór að heyrast í
stangarlegum.
Bíllinn fór í gang eftir að ég leyfði honum að kólna, sem þýðir að mótor snýst og fer í gang.
Heyrist samt í stangarlegum svo ég drap strax á honum og hef ekki gangsett hann síðan.
Mig langaði að forvitnast hjá ykkur fróðari mönnum um málið,,,,hvað gæti verið ca kostnaður við að skipta um legurnar.
Hvað þarf að skipta um í leiðinni fyrir utan það augljósa,,,,,olíudælu, stangarlegur og pönnupakkningu t.d.
Hvaða vinna felst í ferlinu,,,,ef ég myndi rífa mótor í sundur og skila af mér blokkinni til fagaðila sem myndi vinna verkið t.d.
Hvaða kostnaður gæti leynst í þessari aðgerð ?



