Óhljóð í E46 318

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Óhljóð í E46 318

Postby vikingur112 » Wed 11. Apr 2012 01:56

Sælir félagar.

bmwinn hjá mér er byrjaður að láta illa.

hér að neðan er myndband sem ég tók áðan af hljóðinu úr bílnum.

http://www.youtube.com/watch?v=dWqDKdKXPwc&feature=youtu.be

hann er keyrður 219þús km.

fór í smurningu í 217.þús km, er búinn að gá hvort þetta sé rétt olía og það passar allt.

mér finnst eins og hljóðið komi úr vélinni, ég veit bara ekki hvað þetta gæti verið.
hljóðið kemur eingöngu þegar bíllinn fer yfir 2000 snúninga, þegar myndbandið var tekið upp var vélin heit og góð.
Ég er ekki fróður um bíla svo öll hjálp kæmi sér vel það sem að ferð á verkstæði er ansi dýr.

kveðja Hallgrímur
vikingur112
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sun 25. Apr 2010 21:23

Re: Óhljóð í E46 318

Postby ömmudriver » Wed 11. Apr 2012 06:13

Farðu með bílinn í Eðalbíla og láttu þá hlusta á hana, þeir eru með töluverða reynslu af þessari Rover/ BMW vél.
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: Óhljóð í E46 318

Postby vikingur112 » Wed 11. Apr 2012 07:23

ömmudriver wrote:Farðu með bílinn í Eðalbíla og láttu þá hlusta á hana, þeir eru með töluverða reynslu af þessari Rover/ BMW vél.



verst að ég er á Akureyri.


takk samt
vikingur112
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sun 25. Apr 2010 21:23

Re: Óhljóð í E46 318

Postby Subbi » Sat 14. Apr 2012 19:06

alveg ljóst að hann er að svelta smur á einhverri legu

myndi giska á Knastáslegu

gæti verið stífluð undirlyfta en hljómar meira eins og lega
BMW E38 735i 2001 Cosmosschwarz Metallic
BMW E12 520i 1979 154 Brasilbraun Brazil Brown Metallic Brown Löngu Grafinn og Týndur
User avatar
Subbi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 311
Joined: Thu 24. Dec 2009 11:20
Location: Agadir Marocco

Re: Óhljóð í E46 318

Postby Jökull » Sat 14. Apr 2012 22:13

Þetta er mjög líklega stangarlega, hljómar þannig allavega :(
Image
BMW 325XI E46 '02
BMW X5 E53 '02
User avatar
Jökull
Getawaybílstjóri
 
Posts: 965
Joined: Wed 11. Jun 2003 12:33

Re: Óhljóð í E46 318

Postby gardara » Sun 15. Apr 2012 12:08

Ég myndi skjóta á legur eða vanos
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Óhljóð í E46 318

Postby Danni » Sun 15. Apr 2012 18:24

Ég ætla að taka undir það sem hinir segja og skjóta á stangarlegu. Ég hef verið í kringum nokkra bíla sem fóru á stangarlegum og þeir hljóma allir svona.

Ég mæli með að þú keyrir bílinn ekki neitt og forðast það að setja í gang. Ég hef séð bíl með ónýta stangarlegu verið settan í gang og áður en hann náði að hitna var stimpilstöng komin í gegnum blokkina.

Byrjaðu á því að draina olíuna í hreint ílát og reyna að sjá hvort það er eitthvað svarf í henni. Veit ekki hversu mikið vesen það er að taka olíupönnuna úr þessum bílum en þegar þú ert búinn að draina geturðu tekið pönnuna af og reynt að hreifa við stöngunum, ef það er eitthvað slag í einhverri stönginni þá er pottþétt farin lega.

Ef þetta væri Vanos þá væri hljóðið líkara þessu:


Hér er annar BMW farinn á stangarlegu, hljómar svipað, er ekki í lausagangi heldur bara þegar vélinni er snúið:


Hér sérðu hvað ég á við með að hreifa við stöng:
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: Óhljóð í E46 318

Postby slapi » Sun 15. Apr 2012 22:40

Það er ekkert Vanos í þessum heldur.
Annar áður en maður fer að dæma stangarlegu ónýta hérna í beinni þá myndi ég láta einhvern fagaðila þarna fyrir norðan eins og Carx hlusta þetta fyrir þig , svona ef þetta er bara brotinn viftureimastrekkjari :x
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: Óhljóð í E46 318

Postby vikingur112 » Sun 15. Apr 2012 22:49

sælir drengir, þakka öll þessi svör, hann fer á morgun á verkstæði og þar verður þetta skoðað, vona svo innilega að þetta sé ekki stangarlega.

veskið verður vel heitt ef svo er, jæja vona það besta en bý mig undir það versta.
vikingur112
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sun 25. Apr 2010 21:23

Re: Óhljóð í E46 318

Postby vikingur112 » Mon 16. Apr 2012 22:28

smá update, fór á verkstæði og skildi bílinn eftir, fékk svo símhringingu áðan og fékk góðar fréttir, hálfstífluð undirlyfta,. skipt um olíu og sett hreinsiefni og hljóðið fór.

svo þetta var ekki dýr viðgerð. :)
vikingur112
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sun 25. Apr 2010 21:23

Re: Óhljóð í E46 318

Postby Danni » Mon 16. Apr 2012 22:36

Damn hvað það var mikill hávaði í einni undirlyftu :shock:
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: Óhljóð í E46 318

Postby vikingur112 » Mon 16. Apr 2012 22:39

Danni wrote:Damn hvað það var mikill hávaði í einni undirlyftu :shock:


er alveg sammála þér. sjáum til hvort það heyrist eitthvað þegar ég næ í hann á morgun.
vikingur112
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sun 25. Apr 2010 21:23

Re: Óhljóð í E46 318

Postby Subbi » Tue 17. Apr 2012 00:38

rétt eins og mig grunaði þetta var of fínt til að vera sveifaráslega frekar knastáslega eða stífluð undirlyfta

tikk í undirlyftu kemur vegna of þykkrar olíu eða hálfstíflaðarar rásar í undirlyftuni en ef hún er alveg blokkuð heyrist helvíti hátt glamur í þessu :)
BMW E38 735i 2001 Cosmosschwarz Metallic
BMW E12 520i 1979 154 Brasilbraun Brazil Brown Metallic Brown Löngu Grafinn og Týndur
User avatar
Subbi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 311
Joined: Thu 24. Dec 2009 11:20
Location: Agadir Marocco

Re: Óhljóð í E46 318

Postby vikingur112 » Tue 17. Apr 2012 02:02

Subbi wrote:rétt eins og mig grunaði þetta var of fínt til að vera sveifaráslega frekar knastáslega eða stífluð undirlyfta

tikk í undirlyftu kemur vegna of þykkrar olíu eða hálfstíflaðarar rásar í undirlyftuni en ef hún er alveg blokkuð heyrist helvíti hátt glamur í þessu :)



akkúrat þetta
vikingur112
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sun 25. Apr 2010 21:23


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests