IceDev wrote:SteiniDJ wrote:IceDev wrote:Fyrst að við erum að tala um Ricky Gervais þætti þá mæli ég sterklega með "Life's too small"
Frábært stöff þar á ferð
Ég kunni ekki að meta þetta. Horfði á alla þættina og það voru alveg nokkur atriði sem voru ógeðslega fyndin (t.d. Liam) en flest annað var eiginlega bara hálf sad / lame.Vona að season 2 verði aðeins öðruvísi.
Þetta er án efa ekkert Office/Extras quality stöff hér á ferð en gott samt sem áður. Auðvitað er þetta sad og lame, enda er það formúlan sem að Ricky heldur sig við. Sú formúla virkar reyndar mjög mismunandi á fólk, sumt fólk fær bara kjánahroll á meðan annað fólk öskrar af hlátri.
Ég er einn af þeim öskrandi.
Hef bara séð einn og einn þátt af Office og Extras (atriðið með Patrick Stewart var auðvitað best í HEIMI). Ricky er með svakalegan hit / miss húmor hjá mér.
Horfði samt á An Idiot Abroad og þótti það bara mjög skemmtilegt. Hefði viljað sjá Season 3, en hef heyrt að það sé ekki á næstunni.



