Svo í dag fékk ég í hendurnar Pelican parts sendinguna og verslaði líka mótorolíu, olíusíu, ATF vökva og kælivökva
Byrjaði á því að skipta um gúmmíplögginn fjögur sem eru efst, sitthvorumegin á heddinu en gömlu plöggin voru ekki að þétta nóg og lak meðfram þeim.
Búið að taka gömlu úr og þrífa sætin:
Gömlu vs. nýju:
Nýju komin á sinn stað:
Næst setti ég nýju ventlalokspakkninguna ásamt ventlalokinu á og herti niður með nýju hetturónum:
Því næst skipti ég um pakkninguna á vatnsútganginum aftan á heddinu en gamla pakkningin smitaði:
Búinn að hreinsa gömlu pakkninguna af:
Og komið saman með nýju pakkningunni:
Að lokum þreif ég throttlebody'ið og tók svo kælivatnsgaurinn af nema að það gekk ekki betur en svo að tveir skrúfuhausar af þremur brotnuðu og verð ég að athuga hvort að ég nái ekki restinni af skrúfunum úr á morgun:
Hér sést hvað þetta er tært/ ryðgað og flott:
Annar stúturinn brotnaði af við lítið átak enda álið orðið vel stökkt en það gerir ekkert til því að ég á nýtt lok:
-EDIT-
Ég skipti líka um kerti og eru nú kominn í Bosch W8LCR+ og eiga þau að endast 50% lengur sökum Yttrium kjarna en þau leysa af gömlu W8LCR kertin










