Sælir,
Er með e39 540 2000 árgerð. Lásinn bílstjóramegin er búinn að vera leiðinlegur uppá síðkastið og núna er ekki mögulegt að opna hann með lyklinum, það virkar vel að opna skottið þannig lykillinn er í lagi. Þetta er eldri aukalykill þannig það er ekki hægt að opna hann með fjarstýringu. Er búinn að prófa graphite spray á lásinn og reyndi eftir bestu getu að athuga hvort að það sé eitthvað fast þarna inni. Ég næ ég varla að snúa honum, ég hef náð því 2-3 sinnum en þá snýst hann 180° og ekkert skeður, þannig það er eins og eitthvað sé laust þarna inni.
Þ.a.f kemst ég ekki inn í bílinn þar sem aftursætin eru ekki fellanleg úr skottinu, hvaða möguleika hef ég, er einhver önnur leið til að komast inní bílinn eða þarf ég að láta draga bílinn til B&L / TB?
Kv,

