Ég ákvað að rannska málið sérstaklega í ljósi þess að rétt eftir að ég keypti bílinn þá fór bíllinn í olíupönnu og olíudælu skipti hjá B&L og var þá líka skipt um vökva á stýri og kassa að minni beiðni en mér hefur alltaf fundist kassinn verið leiðinlegur í gíra í köldu veðri en allt í lagi þegar hann hefur náð vinnsluhita
Ég hafði samband við hann Hermann BMW mann hjá BL og hann tjáði mér það að það ætti að fara ATF vökvi á kassan og að það hafði verið sett gírolíu á kassan þegar hann var hjá B&L á sínum tíma en það voru mistök af hálfu starfsmannsins sem vann verkið á sínum tíma og var Hermann ekki par ánægður með þessi mistök en gat því miður ekki skammað starfsmannin því jú hann er hættur að vinna hjá BMW umboðinu og er nú að vinna hjá Porsche umboðinu
Hermann var ekkert nema hjálpsamur varðandi þetta mál og sagði mér hvernig ég skildi snúa mér í því að leiðrétta þessi mistök því að gírolían sem er á kassanum er mjög þykk á meðan ATF vökvinn er frekar þunnur.





