Skipti um peru um daginn í E34 hjá mér en það kom ekkert ljóst á nýu peruna frekar en gömlu svo ég prufaði að volt mæla tengið og bera það saman við hitt tengið, mældist rúmlega 10v þar sem hún lýsti ekki en kringum 12 þar sem hún lýsti, hvernig lagar maður svona óþverra? Einnig kveikja hvorki dagljósinn né stöðuljósin á sér þegar bílinn er í gangi og rofinn er í neðstu stöðu, þarf að ýta honum alveg upp til að fá hvorutveggja í gang, veit ekki hvort þetta sé tengt vandamál en það þurfti líka að gera þetta svona áður en ljósið hætti að lýsa.
mbk. Markús


