Thrullerinn wrote:Hvað segja viðgerðarkallarnir? Er þetta ónýtt?
Ég vitna bara í fyrra svar mitt , Ónýtt.
Kostar eitthvað bara mikið að gera við mótorinn , held að þetta sé engin gróðrarstía þessi bíll og í rauninni skammarlegt hvað þetta er komið hátt í verði.
Held að menn geri sér ekki almennilega grein fyrir hversu mikið ál er í boddýinu þá sérstaklega bæði framstykkin og þetta er ekkert togað og græjað í bekk þessi bíll. Ef skipta á um stykkin þarf að fara eftir kúnstarinnar reglum með límingar og annað og er í rauninni bara 2 verkstæði sem eru hæf í þetta , Réttur og Réttingarverkstæði BL. Þetta verður aldrei bíll aftur.