Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!!

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!!

Postby Jói Vidd » Wed 08. Feb 2012 23:04

Er með 540i E39 sem er með 4.4 v8 1999
Þannig er mál með vexti að bíllinn hjá mér byrjaði á því í haust að vera straumlaus eftir að standa smá (notaði hann mjög lítið í sumar og haust) og svo eitt skiptið sem ég gaf honum start þá kom hann með transmission failsafe í mælaborðið og ég spái ekkert í því, svo prufa ég aðeins seinna að drepa á og setja aftur í gang og þá kemur ekkert.. svo einhverjum dögum seinna gerist þetta aftur og aftur og byrjar að vera oftar straumlaus og svo einn daginn kemur þetta transmission failsafe og airbag ljós í mælaborðið og fer svo seinna.. svo fer ég einn daginn stuttu seinna og versla mér nýjann geymi sem kostaði hvorki meira né minna en 40þ. og er heví stór. Og eftir það dettur bíllinn alltaf í gang, en nokkrum dögun seinna koma bæði þessi ljós aftur og aðgerðarstýrið dettur líka út og tvær stillingar á þurkunum. þetta kemur svona og fer.. svo heldur þetta svona áfram og svo byrjar útvarpið að detta út líka öðruhvoru(stundum virkar að drepa á bíllum og setja í gang aftur) og svo byrjar þetta að aukast frekar en hitt og ég tek eftir því að hann verður alltaf þyngri í gang og einhverjir svona rafmagnsbilanir hér og þar einsog td. þarf ekki að stíga á bremsuna til að taka úr park og hiti í sæti virkar bara stundum og eitthvað svona.. og svo núna þá er hann altaf straumlaus þegar hann er búinn að standa smá (þetta er aukabíll hjá mér, ekkert í daglegri notkun) svo er þetta þannig í dag að það er hátíð ef útvarpið virkar! hvað getur þetta verið? altanitor? Tækniþjónusta bifreiða náði ekki sambandi við tölvuna og bentu mér að fara í eðalbíla eða b&l.. en hafið þið heyrt um eitthvað svipað sem getur líst sér svona? getur verið að hleðslan sé eitthvað tæp og hann slái þá út einhverju rafmagnsdóti?

Hjálp, ég er ráðalaus :(
BMW E39 540i M-tech '99
Nissan Patrol 44" '98

Jóhann S:6622052
User avatar
Jói Vidd
Kassabílstjóri
 
Posts: 130
Joined: Tue 19. Aug 2008 19:27
Location: Ölfusið

Re: Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!!

Postby bErio » Thu 09. Feb 2012 08:55

Langbest að láta lesa af honum og vona að það komi upp eitthvað þar
Annars er bíllinn greinilega að leiða út rafmagni og best væri að skella honum til meistaranna hjá Eðalbilum
Getur byrjað á því að láta mæla hvort hann sé að leiða út hjá t.d. rafgeymasölunni i hfj, hef fengið toppþjónustu þar.
BMW E39 530D '03 ///M-Tech - Stations
BMW E39 540i '00 - Sedans

E39 k1ng
Sævar P.
User avatar
bErio
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3691
Joined: Mon 25. Sep 2006 09:39

Re: Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!!

Postby Zed III » Thu 09. Feb 2012 09:14

bErio wrote:best væri að skella honum til meistaranna hjá Eðalbilum


What he said.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!!

Postby Axel Jóhann » Thu 09. Feb 2012 09:52

Prófaðu að mæla hleðsluna á alternatornum
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!!

Postby Danni » Thu 09. Feb 2012 14:19

Mér finnst þetta hljóma eins og þeta gætu verið tvær bilanir.

Annars vegar Final Stage Unit. Prófaðu að googla það. Það koma endalausar rafmangskvillar þega þeir fara.

Hinsvegar svissbotn. Þegar hann bilar þá slekkur hann stundum ekki á öllu þegar slökkt er á bílnum og þessvegna fer hleðslan. Sömuleiðis þá kveikir hann ekki á öllum fídusum þegar bíllinn er settur í gang.

Ég átti E39 með bilaðan svissbotn og random rafmagnskvilla sem fylgdu því. T.d. var það eins og hjá þér, ef hann stóð í lengri tími varð hann alltaf rafmagnslaus. Stundum varð hann rafmagnsslaus á einni nóttu, stundum eftir viku.

Útvarpið var líka með leiðindi. Það slökkti ekki á sér þegar ég drap á bílnum. Ljósin á því slökknuðu en hljóðið var ennþá í gangi. Síðan um leið og inniljósin slökknuðu þá slökknaði á útvarpinu. Spólvörnin og stöðuleikakerfið virkuðu bara stundum.

Þegar hann var orðinn low á rafmagni þá kom einmitt svona "Transmission Fail-Safe program" í mælaborðið.

En ég segi eins og hinir, farðu með hann í Eðalbíla og fáðu þá til að lesa af honum, þeir hljóta að geta komist að vandamálinu!
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!!

Postby Orri Þorkell » Thu 16. Feb 2012 10:20

eitthvað búinn að finna útúr þessu?
BMW 735i E32
Subaru 1800 Turbo Yoda
User avatar
Orri Þorkell
Getawaybílstjóri
 
Posts: 710
Joined: Wed 27. Sep 2006 22:15


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests