Af mbl.is...
Masað á methraða
Lögregla í Skotlandi stöðvaði í vikunni ökumann sem talaði í farsíma á meðan hann geystist áfram á 250 kílómetra hraða. Myndir voru teknar af manninum þar sem hann sat hinn rólegasti undir stýri en hann ók bifreið af gerðinni BMW Z4. Slíkir bílar eru hannaðir til ofsaaksturs og ná 100 kílómetra hraða á rúmum sjö sekúndum.
Maðurinn fór nærri því að slá ofsaakstursmetið í Bretlandi en það á ökumaður sem náðist á 252 kílómetra hraða. Sá ók einnig BMW.

