E36 mælaborð dettur út

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E36 mælaborð dettur út

Postby krayzie » Sat 21. Jan 2012 15:26

Það er smá vesen í E36 hjá mér, þetta er 320 bíll bsk 1993 og þetta lýsir sér þannig að ég fer út að keyra og allt í góðu, nema hvað að allir mælar í mælaborði (bensínmælir, snúningsmælir, hraðamælir og hitamælir) detta allir niður í smá stund en ljósin loga áfram, svo detta þeir oftast alltaf inn aftur nokkrum sekundum seinna og akkurat þegar þeir poppa aftur inn þá kviknar handbremsuljósið og eitthvað annað ljós en það hverfur eftir 2-3 sek og allt orðið eðlilegt aftur, þetta hefur engin áhrif á aksturinn.

þetta gerist mjög oft, stundum í nokkrar sek, stundum alveg í 10 minutur, virðist skipta litlu málið hvernig ég keyri eða hvort ég banka á mælaborðið, þetta er algjörlega sjálfstætt og gerist stundum meðan bíllinn er kyrrstæður. Ég prófaði að taka mælaborðið úr og skoða það bak og fyrir, ásamt því að skoða plöggin fyrir það og plögga þeim vel í en það breytti engu og ég fann ekkert að þessu.

Þetta skiptir ekki miklu máli þar sem þetta hefur engin áhrif á aksturinn, en það fer vel í mínar fínustu að geta ekki kíkt á mælana hvenær sem er, ég er búinn að prófa að leita á netinu en ég finn ekkert um þetta.

Hefur einhver lent í þessu eða svipuðu? Allar skoðanir vel þegnar
Audi A4 2.0 4sale
User avatar
krayzie
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 451
Joined: Tue 27. Jul 2010 20:59
Location: Reykjavík

Re: E36 mælaborð dettur út

Postby Zed III » Sat 21. Jan 2012 20:40

Búinn að skoða öll öryggi og ert þú búinn að setja annað mælaborð í og sjá hvort þetta hegðar sé eins ? Það myndi amk útiloka mælaborðið sjálft.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: E36 mælaborð dettur út

Postby krayzie » Sat 21. Jan 2012 22:34

öll öryggi eru í lagi já en nei hef ekki prófað annað mælaborð, fer í það að finna annað.. ef svo færi að mælaborðið sjálft væri bara ónýtt/lélegt og þyrfti að skipta því út, get ég þá einhvernveginn haldið km stöðunni áfram í nýja mælaborðinu?
Audi A4 2.0 4sale
User avatar
krayzie
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 451
Joined: Tue 27. Jul 2010 20:59
Location: Reykjavík

Re: E36 mælaborð dettur út

Postby krayzie » Sat 28. Jan 2012 18:00

gæti þetta verið sambandsleysi í hraðamælaplögginu á drifinu sem veldur því að allir mælar í mælaborði detta út?
Audi A4 2.0 4sale
User avatar
krayzie
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 451
Joined: Tue 27. Jul 2010 20:59
Location: Reykjavík

Re: E36 mælaborð dettur út

Postby Misdo » Sat 28. Jan 2012 18:22

Þetta var alltaf að gerast á 318 sem ég átti og mér var sagt á sínum tíma að
Ég þyrfti að kaupa nýtt því mitt væri bilað/ónýtt
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone
User avatar
Misdo
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1586
Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests