Mig hefur alltaf langað að vita hvernig vélarnar í M bílunum eru modifiaðar og haft samt svona langan endingartíma. (snilldar uppbygging)
Hvað er nákvæmlega gert við þær sem er ekki gert við aðrar vélar???
Þetta er það sem mig langar að vita ásamt öðru : Eru M vélarnar twincam, fourcam eða svaðalega heita knasta, hvar byrjar powerbandið í þeim (er það ekki frekar hátt), eru þeir með sér throttle body pr. cyl, hvar er redline á þeim og bara ástæðan fyrir þessari svaðalegu virkni?
Ég er svona aðallega að spá í M5 bílunum frekar en M3
Er ekki eitthver hérna með það á hreinu (nokkurn veginn)
Líka hvað stendur M fyrir???



