Hvað getur verið að hrjá miðstöðina í þessum bíl
Hún rétt volgnar og hitamælir fer ekki nema kvart upp
Splunkunýr vatnslás átti að leysa málið í dag en það er allt við það sama svo er eins og miðstöðin gangi áfram eftir að lykill er tekinn úr sviss því bíllin hefur tvisvar verið rafmagnslaus að morgni undanfarið og þrátt fyrir splunkunýjan BOSCH geymir 120ah
er nú að giska á að það gæti leynst webasto í honum sem er að keyra sig upp en nær ekki að hita og klárar rafmagnið skoða það nánar annað kvöld því hann virðist vera að tapa 2 til 3 lítrum af dísil yfir nóttina og ekkert smit að sjá
Spurning ? er EGR Thermostat í þessum bílum og gæti þurft að skifta um hann ???
Einhverjar hugmyndir strákar hvað getur verið að hrjá þennan gæðing

