Ég er með E39 523 sem er svona drulluleiðinlegur útá vegi.
Hann er fínn og eðlilegur á lítilli ferð en svo þegar hraðinn eykst þá finnst mér hann bara fljóta upp að aftan...
Ef það er samt blautt eða þurrt þá er hann í lagi, en þetta er bara þegar það er svona snjór eða mjög mikil hálka.
Ég fór með hann á hjólbarðaverkstæði og þeir ballanseruðu uppá nýtt fyrir mig, og 5 menn ásamt mér kíktu á hjólabúnað og allt stýristengt sem við sáum, og við fundum ekkert athugavert.
Ég er því í smá bobba því hann er ekkert að hegða sér eðlilega útá vegi?
Hvað dettur ykkur í hug?
Kæmi til greina að dempari væri orðinn lélegur/ónýtur að aftan??
Með fyrirfram þökk


