Sjálfskiptingarvesen,

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Sjálfskiptingarvesen,

Postby BMW_Owner » Mon 19. Dec 2011 23:11

sælir, heyriði þetta er ekki BMW en þetta er allt með sama grunninn, en ég lendi í því á benzanum hjá mér að hann snuðar aðeins á milli 3 og 4 gír, ekkert á milli hinna gíranna og þetta gerist bara þegar ég er að keyra rólega, ef ég keyri " rösklega" þá kemur ekkert, skiptir sér eðlilega. hvað haldið þið snillingarnir að sé að valda þessu?, það þarf náttúrulega ekki spyrja að því að það er nóg á skiptingunni og olían er nýleg ásamt því að það er ekki brunalykt af henni.
:santa:
BMW 528Ia
User avatar
BMW_Owner
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1965
Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58

Re: Sjálfskiptingarvesen,

Postby Axel Jóhann » Thu 22. Dec 2011 09:45

Kúplingarnar eða bandið lélegt líklegast.. :) Þýðir alltaf skipting úr.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Sjálfskiptingarvesen,

Postby Alpina » Thu 22. Dec 2011 09:49

Axel Jóhann wrote:Kúplingarnar eða bandið lélegt líklegast.. :) Þýðir alltaf skipting úr.


grunar að svokallaður LOCK-UP borði sé farinn
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Sjálfskiptingarvesen,

Postby BMW_Owner » Sun 25. Dec 2011 03:42

en hvernig er það, nú er hún í fínu lagi þegar hún er köld, og já þegar hún er heit þá er allt "hart" og ákveðið nema þegar hún fer úr 3 í 4, þetta lýsir sér þannig að ef ég er að keyra í 3 gír og segjum að vélin sé á 4000rpm og þá færi hún í 3000rpm c.a í 4 en þegar hún er að skipta á milli þá fer hann í 4500rpm (snuðandi) og læsir svo augnabliki seinna á "réttan" snúningshraða og já fer aldrei úr gírnum s.s ekkert slip sama hvað gefið er í (nema náttúrulega þegar hann skiptir aftur niður í botngjöf eða álíka)
en núna veit eg ekki hvaða áhrif ný olía og sía geta gert en er það eitthvað sem ég ætti að skoða eða væru þannig bilanir gjörólíkar því sem þetta er og þá yrði þetta bara peningasóun.

Annars vegar er mikið mál að laga þetta lock - band, gæti ég t.d lagað það sjálfur, (drullu handlaginn en hef aldrei rifið ssk í sundur). :thup:

p.s kemur daglega en samt ekki allan daginn kemur svona og fer.
BMW 528Ia
User avatar
BMW_Owner
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1965
Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests