Önnur framljósa peran hjá mér er orðin vel bleik og á sennilega ekki mikið eftir.
Ég er eitthvað búinn að skoða hvaða möguleika ég hef og sýnist mér orginal perur kosta sirka 20k stk. Á meðan ég get fengið parið af 5000K perum hjá N1 á sirka 5000 kall.
Ég er bara að spá hvort menn viti hvar munurinn liggur, annarstaðar en í litnum. Eru ódýru perurnar ekki eins bjartar eða endast þær bara styttra...?

