Auðvitað verða krakkar áfram krakkar og halda áfram að leika sér en þróa samt með sér hæfileikann til að bregðast við óvæntum aðstæðum
Meira en 70% slysa þegar einhver áhætta er tekinn í akstri verður vegna reynsluleysis þar sem upp kemur óvænt atriði til dæmis bíll fer í að slæda eða skyndilega þarf að bremsa vegna hindrunar og þá er það oft að fólk Panikkar og gerir ekkert til að koma sér út úr aðstæðunum
Maður hefur oft lent í kröppum aðstæðum og alltaf náð að bjarga sér út úr þeim með hinni stóísku ró og halda áfram fram í rauðan dauðan að reyna að stýra farartækinu eða allavega í það minnsta reyna að ná stjórn á því
Hef verið farþegi í bíl sem lenti á töluverðri ferð í Karpahrygg á Reykjanesbrautini og Ökumaðurinn fullorðin maður sem aldrey hafði neitt hent í umferðini sleppti bara stýrinu nelgdi á bremsuna og fórnaði höndum og öskraði.Bíllinn endaði utanvegar sem betur fer í miklum snjó og það slapp en hvernig átti það að bjarga öllu að sleppa bara stýrinu grípa um hausinn og Öskra bara einhvað bull
Get lofað ykkur að ef það væru til Vídeó innan úr bílum í slysatilfellum þá yrði raunin sú að flestir á þeim myndum væru að bera fyrir sig hendurnar öskrandi af hræsðlu
Þetta er ekkert öðruvísi en með hestinn okkar hann gerir ekkert og svarar engu nema við tökum í tauman og stjórnum honum

nema hraðinn er margfalt meiri og Höggið verra ef menn ætla a'ð gefast upp