Öskubuska...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Öskubuska...

Postby Chrome » Mon 03. May 2004 20:22

Öskubuska var orðin 85 ára og bjó alein í höllinni sinni ásamt gamla kettinum sínum, honum Brandi. Prinsinn hennar og allir hinir voru komnir yfir móðuna miklu. Skyndilega birtist álfamærin, sem hafði hjálpað henni í gamla daga.

"Jæja Öskubuska mín. Þú ert nú búin að eiga gott líf og vera góð við alla í þína samferðarmenn. Vegna þessa ætla ég að gefa þér nýtt tækifæri. Ég ætla að gefa þér þrjár óskir."

Öskubuska þakkaði voðalega vel fyrir sig og fór nú að hugsa hvers hún ætti að óska sér. Hún mundi að það var eitthvað farið að lækka í buddunni og því bað hún álfamærina að gera sig ríka. Um leið og hún sleppti orðinu breyttist gamli ruggustóllinn hennar gullstól, gluggatjöldin voru gullofin og allar hirslur
fylltust af gersemum.

"Jahérna, þabbarasvona!" sagði sú gamla og tók bakföll af undrun og gleði. "Heyrðu álfamær, nú vil ég biðja þig að gera mig svona unga og hressa eins og ég var í gamla daga!" Samstundis fór einkennilegur straumur um Öskubusku og miklar breytingar urðu í líkama hennar. Húðin varð mjúk og falleg, blóðið fór
að ólga og löngu gleymdar langanir og þrár helltust yfir Öskubusku. Hún varð andstutt og ólgandi og bað álfamærina um síðustu óskina: "Góða álfamær, getur þú breytt honum Brandi mínum í snarheitum í svo fallegan prins að annað eins hefur aldrei sést!". Brandur umturnaðist á svipstundu og breyttist í svo fallegan prins að jafnvel fuglarnir á himninum féllu í yfirlið þegar þeir sáu hann.

Prinsinn gekk til Öskubusku, hún fleygði sér í fang hans og þau kysstust lengi. Þegar kossinum loksins linnti og prinsinn var búinn að ná andanum, þá strauk hann lokk frá enni Öskubusku, leit bláum augum beint í hennar augu og sagði svo mjóróma: "Sérðu eftir því núna að hafa látið gelda mig hér um árið?"
...Mazda 323F 98'...

S.S.S
"We are all born ignorant, but one must work hard to remain stupid." -Benjamin Franklin
User avatar
Chrome
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1739
Joined: Tue 17. Feb 2004 15:36
Location: Kópavogur

Postby Haffi » Mon 03. May 2004 20:24

ROFL :D hahahaha :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol:
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby gunnar » Mon 03. May 2004 20:26

ROFL! :lol: :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Jss » Tue 04. May 2004 09:16

:rofl: Þvílík snilld. :D
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Alpina » Tue 04. May 2004 19:16

Virkilega góð saga,,,,,,,,BARA í lagi
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 45 guests

cron