Ég var svona að velta því fyrir mér, hversu erfiðir eru þið þegar kemur að því að leyfa öðrum að prófa bílinn ykkar??
Ég er nefnilega rosalega skrítinn þegar kemur að þessu, ég hef átt bílinn minn í tæp þrjú ár og ekki besti vinur minn hefur fengið að taka í hann, þó svo að ég hafi prufað hans bíla. Sá eini sem hefur prófað bílinn minn er pabbi minn og það var í hálfgerðri nauðsyn.....svo að ég tali ekki um það hversu erfitt það er að leyfa ókunnugum þegar maður er að selja
Mér finnst nánast enginn annar kunna að keyra bílinn minn og aðrir fari ekki jafn vel með hann eins og ég og blablablabla.....
Eruð þið líka svona ????



