Sælir.
Það er aðeins farið að bera á því að hægagangurinn sé óeðlilegur hjá mér.
Bíllinn er með M50 manifoldi en mér sýnist þó ekki vera vacuum leki tengdur því.
Hægagangurinn rokkar aðeins niður fyrir 0,5 þar sem hann hangir í eðlilegu standi og hef tvisvar lent í því að hann drepi allveg á sér þegar ég hef t.d. verið að stoppa á rauðu ljósi.
Hann missir ekkert afl og er mjög eðlilegur í akstri.
Mér dettur helst í hug: bensínsía, að hann dragi falskt loft með bensíninu eða hægagangsskynjari.
Hvað haldið þið ?


