Ýmis tilboð verða í boði, nokkrir vel valdir BMWar verða til sýnis innandyra hjá þeim, grill og eitthvað fleira á dagskránni! Kem með nánari upplýsingar þegar nær dregur.
Hvet alla til að mæta á sínum BMW, vel þvegnum og flottum.
Þetta verður auglýst og því góð kynning fyrir klúbbinn.
Vonast til að flestir sjái sér fært um að mæta á þennan skemmtilega dag!
Fyrir hönd BMWkrafts
Einar Sigurðsson



