Sælir,
Ég starfa sem flugvirki hjá Air Atlanta í stæðsta sandkassa í heimi, Saudi Arabíu.
Hérna eru nokkrar myndir frá ferðalögum mínum, ég flýg með vélunum sem eru Boeing 747-400 á hina ýmsu staði sem er bara gaman.
Hérna er mynd af Ferrari sem við flugum með frá Jeddah til Riahd, sem eru svona 500km. og það var ekkert annað um borð í vélinni nema þessi bíll.....

Hérna erum við að skipta um mótor á einni vélinni og hann hvu ekki kosta nema um 5mill US$$

Og hérna er mynd af því þegar ég fór til Suður Afríku til Sambíu með námu gröfur, það biluðu græjurnar sem þeir voru með og það var ódýrara að kaupa nýjar heldur en að láta hinar vélarnar í viðgerð, því náman framleiðir fyrir 3mill US$$ á DAG.

Kem svo með fleyri við tækifæri.
Enjoy.