Með nýrri reglugerð um skráningu ökutækja voru gerðar breytingar á reglum um einkamerki. Framvegis mega umráðamaður, eigandi og meðeigandi ökutækis eiga einkamerki, en hingað til hefur umráðamaður ekki mátt eiga einkamerki. Einnig varð sú breyting að ekki er lengur hægt að framselja réttinn til einkamerkja, en hins vegar má án takmarkana afsala réttinum og úthluta honum að nýju. Áletrun verður laus til úthlutunar um leið og rétturinn hefur verið felldur niður hjá US og nýr umsækjandi getur þá sótt um réttinn að nýju. Nýr umsækjandi verður að sækja um réttinn með hefðbundnum hætti og greiða réttindagjaldið að fullu.
birkire wrote:4 door þristar... LEIM
Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 36 guests